96 Skýrslur þær, er sendar hafa verið landshöfðingja, eru mjög svo ófullkomnar, margar hverjar. Kennslu- greinir eru taldar í töfiunni allar, sem eitthvað af börn- unum í hverjum skóla hafa numið eitthvað í; en í mörgum þeirra hafa að eins fáein af börnunum tekið þátt. f>ó skal þess getið, að í sumum af skólunum hefur verið kennt fieira en hjer er nefnt; þannig var ¦enska kennd 2 nemendum á Seyðisfjarðarskólanum, náttárusaga á Eyrarbakka- og Miðhúsa-skólum og söng- ur á Skipaskaga, Kröggólfsstöðum, Narðvík, Hafnarfirði og Mýrarhúsum. 0 í töfiunni merkir, að sú námsgrein, er það stendur við, hafi alls ekki verið kennd í þeim skóla, að því er skýrsiur um skólana bera með sjer. Við fiesta þessa skóla er að eins einn kennari, og er ýmist, að skólanum er skipt í deildir eptir þroska- eða kunnáttustigi, þó að kennslan fari fram í einni kennslustofu hjá einum kennara, eða að öllum nemend- unum er kennt í einu lagi. Reikningar skóianna bera það með sjer, að efna- hagur þeirra er mjög bágur, og bera laun kennaranna, sem til færð eru í töflumii, einuig ljósan vott um það. Keikningar sumra þeirra bera ekki með sjer, hver sjeu laun kennarans. Um laun kennaranna í Hnífsdal og á Hóli skal þess getið, að auk þess, sem í töflunni stendur, hefur þeim verið veitt ókeypis viðurværi með- an skólarnir stóðu. Launin við Mýrarhúsaskóla eru goldin 2 kennurum. 16 af skólum þeim, er á töflunni eru nefndir, hef- ur landshöfðingi nú veitt styrk af landsfje samkvæmt fyrirmælum þingsins 1887, og eru þeir þessir: 1. Barnaskólinn á Vestmannaeyjum . . . kr. 130 2. - Gaulverjabæ . . . . 110 3.-4. - Eyrarbakka ogStokkseyri 400 5.-6. - Miðhúsum og Keflavík . 340