14 færi baft undir til æfingar í senn. En smátt og smátt er bætt við nýju verkfæri, eptir pví, sem æfingarnar verða samsettari og margbrotnari. Niðurskipun vinn- unnar er miðuð við verkfærin sjálf, en verkfærin látin koma í peirri röð, sem bezt bentar til pess, að hver æfing sje á sínum stað og komi að tilætluðum notum. Að öðru leyti yrði hjer oí langt mál að fara út í hin einstöku atriði kennslunnar, enda ekki mikið á peirri lýsingu að græða. pað verður fyrst fullkomlega skiljanlegt, ef sýnt er verklega. J>að er svo sem auðvitað, að til pess að þetta nám verði sannarlega uppbyggilegt, parf tilsögnin að vera góð, eigi síður en í hverri annari námsgrein. Undir kennaranum er það hjer eins og annarsstaðar komið, hver árangurinn verður, hvort nokkur e'ða enginn, að kalla má. Áður var pað siður, að trjesmiðir voru látnir kenna skólaiðnað; en pað kom brátt fram, að aðalatriðið var lagt í lágina og námið varð eintómt handverk, en pýð- ing vinnunnar fyrir uppeldi unglinganna hvarf. Þá var pað ráð tekið, að láta skólakennara nema skólaiðnað og kenna síðan í skólunum, og pykir reynslan hafa sýnt, að pað var heillaráð. Til kennslu í skólaiðnaði parf, ef til vill fremur en til kennslu í nokkurri annari námsgrein, árvakran, glöggskyggnan og samvizkusaman kennara, sem hefur fullan og ljósan skilning á pví, hvað hann er að gera, og sem hefur næma tilfinningu fyrir andlegri og líkamlegri vellíðan unglinganna. Kennslan verður að ganga afmarkaða hraut frá hinu auðvelda til hins torvelda, frá hinu einfalda til hins samsetta. Kennarinn verður að gæta pess vandlega, að nemendurnir beri sig rjett til við vinnuna, pví að ann- ars getur sú æfing, sem ætluð er til að æfa og styrkja líkamann, orðið til pess að veikla hann. Kennarinn