23 mest hafa stafað af pvi, að margir af peim fengu ferða- styrk. Meira en ll, peirra, er fundinn sóttn voru kon- ur, kennslukonur og kennarakonur. Úr Noregi komu fleiri konur en karlar. Á fundinum voru kennarar frá allskonar skólum, há- skólaprófessorar og svo niður eptir. |>egar allur pessi hópur sást í pyrpingu t. d. við fundarsetninguna, varð manni ósjálfrátt að hugsa og finna til pess, að mikið vald væri skólanum fengið. öllum pessum fjölda er dreiít út um löndin og fenginn æskulýðurinn í höndur um pann tíma, sem einna auð- veldast er á hann að verka og beygja hann, mjög sýn- ist framtíðin lögð í höndur pessara manna nú á dögum og ábyrgðarmikið er starf peirra. |>að var fulláskipað með stðrf handa kennurunum pessa fáu fundardaga, og eigi hægt fyrir pá að taka pátt í öllu pví, sem peim gafst kostur á. Fyrst og fremst voru 30 efni tekin til umræðu, og var fyrri hluta dagsins varið til pess. Eigi var hægt að láta allar umræðurnar fara fram á sama stað, held- ur varð að hafa pær á prem stöðum í senn. Tím- inn var of stuttur til að geta komið öllu af á annan hátt, og auk pess tórfengið húsrúm áeinum stað handa öllum pessum hóp. Að vísu gat hver einstakur fundarmaður á pennan hátt ekki verið við nema priðjung af umræðunum, en pað gjörði minna bæði af pví, að pær verða síðar prentaðar og auk pess gat pað varla verið að nokkur hefði jafn- mikinn áhuga á ðllum fundarmálum, og var pá hægt fyrir hvern að velja úr pau efnin, sem honum var ann- ast um. Umræðuefni fundarins voru pessi: 1. Um trúarbragðakennslu í skólum.