45 voru eða með mjög litlutn aukakostnaði. En varla er við öðru að búast á meðan almenningur hefur eigi ljós- ari hugmynd um, hvað talin eru hentug skólahús en nú er. Úr pessu mundi að nokkru mega bæta fram- vegis með pví að taka sama ráð sem Svíar og fieiri, að láta gjöra fyrirmyndar uppdrætti af skólahúsum, og láta pá fá, sem á purfa að halda. En hver ætti að sjá um slikt? Hver eða hverjir ættu að hafa vakandi auga á þeim umbótum, sem jafnt og pjett eru gjörðar á skóla- byggingum og skólaáhöldum, og fræða pá um og leið- beina, er á þurfa að halda? Jeg leiði hjá mjer að svara pví hjer, en viss pykist jeg um að pað mundi borga sig beinlínis og óbeinlínis, pótt nokkru pyrfti til að kosta. Vjer purfum eigi annað til að sannfærast um það, en kynna oss pað sem herra sknlastjóri Morten Hansen hefur gjört að pví að útvega betri og margbreyttari skólaáhöld en áður hefur verið kostur á hjer. En eins og von er getur hvorki hann, nje annar einstakur mað- ur fengið áhöld úr mörgum stöðum, en ekki við að bú- ast, að sami áhaldasalinn hafi beztu áhöld í öllum greinum. Jeg set hjer töfiu yfir námsgreinir í gjaldskólum í Kaupmannahöfn og hverjum tíma varið er til hverrar greinar.