54 Af þessari upptalningu má sjá að fullskipað er með vinnu um ekki lengri tíma, og þó bætist enn eitt við. Svo er kveðið á að nemendur frá kennaraskólum skuli kenna */«1 ár við skóla með leiðbeiningu æfðs kenn- ara; og við pann skóla, sem jeg kynntist gat, æfing þessi farið fram á meðan á námstímanum stóð. Nem- endum gat gefizt kostur á að taka þátt í kennslu við barnaskóla í bænum fyrrihluta dagsins, því að á kenn- araskólanum byrjaði kennsla ekki fyr en klukkan 3 á daginn, enda var annar forstöðumaður skólans kenuari við barnaskóla í bænum. Allt þetta leiðir til þess að mjög fljójst verður að fara yflr sögu. Hjer bætist og það óhagræði við, að kennararnir við kennaraskólana halda eigi sjálfir próf yfir nemendum sínum, heldur er skipuð sjerstök nefnd til þess, og heyrði jeg optar en einu sinni í kennslu- stundum að kennararnir höfðu þetta fyrir augum; þeir skýrðu nemendum frá sinni skoðun, en tóku jafnframt fram aðra skoðun, sem prófendur fylgdu. J>etta veldur auðsjáanlega ruglingi og gjörir nemendum erfiðara fyrir. Enn er eitt allerfitt við kennslu á þessum skólum, og þaðer hve misjafnt menn koma undirbúnir á þá. Jpang- að koma menn með barnaskólamenntun einni saman, og menn sem tekið hafa burtfararpróf af latínuskóla, og jafnvel fleiri eða færri háskólapróf. Enn er eitt at- hugavert, enginn barnaskóli stendur í sambandi við kennaraskólana, svo að æfing í kennslu getur naumast eða ekki fengizt í kennaraskólanum sjálfum og undir handleiðslu kennara hans. Að vísu voru fáein börn fengin í æfingartíma við og við á þeim skóla, sem jeg kom á, en þótt slíkt væri nokkur bót í máli, þá gátu nemendur þó eigi vanizt með því á að kenna, þar sem líkt stóð á og í barnaskólum; auk þess kvað þessi kenn- araskóli vera eini skólinn, sem slíkar æfingar hefur.