33 meistaraverk; það er engin trúarfræði sett i vís- indakerfi, enn það eru allir helztu höfuðlærdómar kristindómsins, einfaldlega settir fram fyrir hjartað. Eg fyrir mitt leyti er á því, að hentugastar barna- lærdómsbækr einmitt væri Lúters Kathekismus sjálfr með hæfllegum lengri eða styttri skýringum, eftir þvi, sem þurfa þætti. Þann veginn hefir ogBalslev farið. Efni Lúters Kathekismusar eru JcrleiJcrinn (tiu laga boðorð guðs, sbr.Matt. 22,3739 Róm.13,49), trúin (trúarjátningin) og vonin (faðir vor, bænin), ásamt sakramentunum; enn allr er hann guðs orð. Enn þessum þrem aðaldygðum kristins manns, og einkum kærleikanum, virðist um of vera gleymt í enum dog- matisku iærdómskverum. Áðr enn eg skilst að fullu við þetta mál, vil eg að eins minnast á það lauslega, að héraðsfundirnir hér á landi eru nú teknir að ræða þetta barna- fræðslumál, og reyna að kippa því á einhvern hátt í liðinn, hver á sinn hátt. Þetta gieðr mig mikið, af því að það er merki þess, að kirkja vor og kirkju- líf sé að rumska. Enn því miðr hefir mér virzt það verða meira ofan á á þeim fundum, að herða áþví, að lögum um uppfræðslu i skrift og reikningi sé hlýtt rækilega, heldr enn að vinna beint að því, íið vekja kristindómslíf í hjörtum barnanna. Þaðer án alls efa nauðsynlegt, að styðja almenna mentun, og enginn getr orðíð maðr með mönnum nú á dög- um, nema hann só bæði skrifandi og reiknandi fyrir sig. Enn kristindómslífið þarf að taka með; þeir mentuðu eru ekki síðr ókristnir í anda enn þeir ó- mentuðu, og því er þtið og skylda þessara smáu kirkjuþinga, að taka það og til greina. Slíkar hrær- ingar þurfa að koma að neðan, frá vitund og þörf