56 málum þar, en hann kaus heldur að fara til Sví- þjóðar. Hann kom til Norköpings og fjekk þar beztu. viðtökur hjá de Geer; þaðan fór hann eptir' skamma dvöl til Stokkhólms á fund Axels Oxenstjerne. Segir hann svo frá fundi þeirra: Örninn norræni rann- sakaði rækilegar en nokkur hafði áður gjört fyrir- ætlun mína bæði með kennslubætur og alfræðisrit- anina; gengu til þess 4 dagar. Þegar við höfðum lokið tali um það, hvernig jeg vildi, að kennslu væri hagað, mælti hann: Jeg hef þegar frá æsku tekið' eptir því, að ekkiværi allt með felldu með kennslu- aðferðir þær, sem haf ðar eru, en hef þó ekki fundið' ráð til að bæta þær. Þegar konungur minn sendi mig til Þýzkalands, átti jeg tal um þetta við ýmsa. lærða menn. Mjer var sagt, að Ratke1 starfaði að kennslubótum, og ljetti jeg ekki fyr en jeg hitti hann.. En í stað þess að tala við mig um þetta mál, fjekk hann mjer stóra bók, er jeg skyldi lesa. Jeg gjörði það, og sá jeg, að hann lýsti ekki svo illa göllunumi á skólunum, en endurbótaráð hans sýndust mjer all ónóg. Þú byggir á betri grundvelli en hann; haltu að eins áfram. Jeg sagði honum, að jeg hefði ekki meira að s.egja um kennsluaðferðir, en nú væri að' hverfa að alfræðinni. Þá svaraði hann: Jeg veitr að þú býr yfir meiru; jeg hef lesið inngang alfræð- innar.8 En um það skulum við tala á morgun; nú 1) Wolfyang Ratke uppeldisfræðingur (15711635) vildi koma breytingum á skólanám, gjöra það eðlilegra og skemmti- legra, leggja stund á móðurmálskennslu og gagnfrði, stofn- aði fyrirmyndarskóla, er þó fór út um þúfur, meðfram fyrir skapbresti Ratke sjálfs. Comeníus kynntist ritum lians ung- ur að aldri og hafa þau eflaust haft töluverð álirif á stefnu hans í kennslumálum. 2) Vinir Comeníusar á Englandi höfðu látið prenta b.ann.