69 sambúð fyrir nemendur eða samneytni má hvorkl vera í skólanum nje utan hans. Hvernig á kennsla að vera auðveld og skemmtí- leg? Viðvíkjandi því gefur Comenius þessar reglur: 1. Ndttúran byrjar á, að greina frá allt óviðTcom- andi. Fuglinn ungar að eins út nýjum eggjum. Menn gróðursetja helzt úng trje, og sjeu þau orðin vaxin, þá skera þeir greinir þeirra og kvisti. Snemma á lfka að byrja að mennta barnið. Um fram allt riður á, að það venjist á hiýðni við kennarann. 2. Náttúran býr efnið þannig undir, að það leitast við að ná sinni dkveðnu mynd, og ákvörðun.. Fuglsunginn gleðst í hreiðri sínu, laus úr skurn- inu, og unun hans er, að æfa sig og fullkomna.. Illa sjá þeir foreldrar fyrir börnum sínum, sem knýja þau til að læra. Námskappið er undir viljanum komið, og er ekki hægt að vekja það' með kiígun. Þvi rlður á, að vekja námfýsi hjá börnunum. Það eiga foreldrar og kennarar a& gjöra, og gjöra það með ástúð og uppörvunum. Skólastofan á að vera skemmtileg og prýdd alls konar kennsluáhóldum. Úti fyrir þarf að vera leiksvæði. Námsgreinarnar þurfa að vera sam- svarandi aldri og skilningi nemanda. Kennslu- aðferðin þarf að' vera eðlileg, því að það, sem eðlilegt er, gengur sjálf krafa. Það þarf ekki að hafa mikið fyrir, að láta vatnið renna ofan brekkurnar nje fuglinn fijúga út úr búrinu, þeg- ar það er opnað. Kennsluaðferðin á að fyrirbyggja leti við námr