77 "breytni, blíð orð í viðræðum, gott mál á bak! Tala aldrei verr um þau á bak en brjóst! Ber eigi út bresti þeirra. Gerðu öllum börnum rétt, og varast illyrði og ónotasemi, hlutdrægni og tortryggni og annað rang- læti. Bjóð þeim aldrei þau illyrði, óvirðingarorð eða ¦óvirðingarmerki, sem þú eigi myndir bjóða fullorðnum. Ef þú gerir þeim rangt, svo játa það og bæt þeim. Vittu það, að réttlætið er hlutur, sem allir eiga heimting á, og sem allir ættu að geta sýnt öðrum. Öllum er eigi gefið að geta elskað heitt og blítt og sýnt ástina í orðum, atlotum og verkum. En allir :geta gert börnum rétt. Getirðu eigi verið góðurvið þan, þá sneiddu þig hjá þeim. Viljir þau ekki leika við þau, svo spill eigi leik þeirra með glettni eða ónotum. Getir þú eigi sýnt þeim blíðuatlot, þá get- ur þu samt varazt að fara illa með þau, meiða og ;smána þau, stjaka þeim og stríða, hæða þau og hræða. Kallir þú þau ekki til þín að skemmta þeim, -svo rek þau ekki frá þér, er þau koma. Legg nokkuð á þig til að gleðja þau. Eitt sinn þekkti eg gamlan heið- virðan bónda, er leiddist spil, en gerði það þó oft fyrir tökubarn sitt að spila við það. Arg það og 'kuldi, sem viða, allt of viða, er beitt við börn, ætti ekki einungis alveg að leggjast niður, heldur ættn allir að hafa hugfast, að gera jafnan eitthvað, til að :gleðja og manna sérhvert barn, sem þeir búa samaa við. En láttu börnin líka vita, að réttlætið lætur ekki að sér hæða. Þótt þú álitir þau góð eins og engla, þá máttu ekki samt gera þau að goðum. Gæt þess, að slíkir englar geta failið og falla oft og þurfa því áminningar og ef til vill stundum hirtingar við. llisbjóði þau virðingarelsku þinni með óhlýðni og