Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 69

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Blaðsíða 69
69 vALGERÐUR MAGNÚSDÓTTIR ANNA ÞÓRA BALDURSDÓTTIR Faglegt sjálfstraust grunnskólakennara Áhrif á starf og starfsþróun Í grein þessari beinist athyglin að faglegu sjálfstrausti kennara og áhrifum þess á störf þeirra og starfsþróun. Notaður var bandarískur spurningalisti um faglegt sjálfstraust kennara með undirþáttunum bekkjarstjórnun, kennslu og hvatningu. Kynnt er tilgátulíkan um tengsl faglegs sjálfstrausts kennara við aðra þætti sem kannaðir voru, en þeir eru, auk kulnunar, þættir um vinnuumhverfi og bakgrunn þátttakenda. Svör um faglegt sjálfstraust eru hliðstæð svörum í rannsókn höfundanna og því ætti listinn að nýtast í íslensku grunnskólastarfi. Mikil fylgni reyndist milli faglegs sjálfstrausts og kulnunar. Vinnustaðarþættir virðast hafa ýmiss konar áhrif, sumir bæði á faglegt sjálfstraust og kulnun, aðrir á annað hvort og enn aðrir á hvorugt. Bakgrunnsþættir höfðu ekki áhrif á aðra þætti sem rannsakaðir voru. inn gang ur Þessi grein er sú þriðja og síðasta um niðurstöður rannsóknar sem gerð var árið 2005, en hinar fyrri birtust í Uppeldi og menntun árið 2007 (sjá Anna Þóra Baldursdóttir og valgerður Magnúsdóttir 2007a, 2007b). Rannsóknarspurningarnar snúast um það hvaða þættir í starfsumhverfi grunnskólakennara séu líklegir til að valda þeim kulnun og um leið hvaða þættir stuðli að og viðhaldi vinnugleði þeirra og starfsáhuga. Í fyrri greinum hafa verið settar fram niðurstöður um kulnun, álag og hvatningu kennarans í starfi (Anna Þóra Baldursdóttir og valgerður Magnúsdóttir, 2007b) og tengsl kuln- unar við ýmsa þætti í starfsumhverfinu (Anna Þóra Baldursdóttir og valgerður Magn- úsdóttir, 2007a). Niðurstöður eru þær að vinnugleði kennara hafi heldur aukist miðað við rannsókn sem gerð var árið 1999 (Anna Þóra Baldursdóttir, 2000) og að kennarar setji í efsta sæti þætti sem lúta að velferð nemenda þeirra, en hafi jafnframt vaxandi áhyggjur af þeim nemendum sem eiga í erfiðleikum. Kennarar telja vinnuálag sitt umtalsvert og eru þau viðhorf það almenn og sterk að þau ber að taka alvarlega. Þeir kalla ótvírætt eftir góðum samskiptum, virkri umbun og hóflegu vinnuálagi. Einnig sýndu niðurstöður að góð samsvörun í gildismati skóla og kennara skiptir miklu máli fyrir líðan kennaranna. Í þeirri grein sem hér birtist eru niðurstöður rannsóknarinnar settar fram með heildstæðari hætti en í fyrri greinum. Uppeldi og menntun 17. árgangur 1. hefti, 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.