Hér birtist skrá yfir rit háskólakennara og annarra starfsmanna Háskóla Íslands og háskólastofnana. Í ritaskránni árið 2001 var yfirlit yfir verk 368 einstaklinga. Þeim hefur fjölgað nokkuð milli ára og eru nú 434. Skráin fékk góðar viðtökur meðal starfsmanna Háskólans og rannsóknabókasöfn, fjölmiðlar og fleiri aðilar hafa einnig fagnað útgáfu hennar. Því er það með mikilli ánægju sem við gefum hana út með þessu sniði annað árið í röð. Ritaskrá 2002 byggist á upplýsingum sem starfsmenn senda til rannsóknasviðs fyrir árlegt mat á störfum þeirra. Ástæða þykir til að birta upplýsingar um hvers konar ritverk, t.d. blaðagreinar og svör á Vísindavef Háskólans, auk upplýsinga um fræðilega fyrirlestra og erindi. Af skránni má ráða að starfsmenn Háskólans sinna gríðarmiklu fræðslustarfi utan Háskólans, á fræðilegum ráðstefnum og þingum, sem og kynningarfundum og samkomum fyrir almenning og fagfélög. Ritaskrár háskólakennara og annarra starfsmanna eru birtar eins og þeim er skilað til rannsóknasviðs. Frágangur þeirra er mismunandi eftir fræðasviðum og hefðum og bókfræðilegar upplýsingar því ekki samræmdar. Efni hvers höfundar er raðað þannig: Lokaritgerðir Bækur, fræðirit Greinar í ritrýndum fræðiritum Annað efni í ritrýndum fræðiritum Aðrar fræðilegar greinar Bókarkaflar og kaflar í ráðstefnuritum Fræðilegar skýrslur og álitsgerðir Ritdómar Fyrirlestrar Veggspjöld Þýðingar Annað Ritstjórn Kennslurit Fræðsluefni Útdrættir Skránni er raðað í stafrófsröð eftir deildum og þar á eftir stofnanir sem heyra undir eða tengjast hverri um sig. Til þess að auðvelda leit, m.a. vegna þess að sumir starfsmenn tengjast fleiri en einni deild eða fræðasviði, fylgir nafnaskrá aftast. Þar sem nöfn meðhöfunda eru oft skammstöfuð samkvæmt erlendum rithætti er ekki unnt að geta þeirra í nafnaskránni. Áfram er unnið að því að gera ritaskrána aðgengilega á netinu. Um birtingu þar verður tilkynnt sérstaklega. Ritaskránni er komið til skráningardeildar Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns og í bókasafnskerfinu Gegni er hægt að fá aðgang að efni hennar. Afriti af öllum greinum sem birtast í erlendum vísindaritum er komið til varðveislu í Landsbókasafni Íslands - Háskólabókasafni. Þeir sem vilja lesa viðkomandi ritverk geta snúið sér til safnsins sem útvegar ljósrit eða kallar eftir verkum í millisafnaláni. Fólk fær þannig aðgang að margháttuðum rannsóknum um Ísland sem birtast í erlendum ritum. Þetta gefur íslenskum lesendum tækifæri á að kynna sér allt sem vísindamenn við Háskóla Íslands fást við og rannsaka. Ritstjórar 5 Inngangur