Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Heilbrigšismįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Heilbrigšismįl

						sóttinni sé komnar á brautarenda, þar sem ekki verður lengra kom-

izt í bili. Reyna verður einhverjar nýjar leiðir og ekki er ómögulegt

að við gætum lagt þar eitthvað til málanna ef við hefð'um skilyrði

nútíma vísinda til slíkra rannsókna.

Ef við eigum kost á slíku boði er vonandi að stjórnarvöldin hafi

vit á að þiggja það. Slík stofnun væri mikill metnaðarauki og ætti

að geta orðið okkur til sóma. Við eigum marga unga, efnilega lækna,

sem mikils mætti vænta af, ef þeir hefðu slík vinnuskilyrði. Og ekki

skortir verkefnin.

Nýtt sjóveikismeðal

Amerísku læknarnir O. Lucius Gay og P. E. Carliner athuguðu

sjóveiki í 1366 hermönnum, sem fóru frá New York til Bremerhaven

á herflutningaskipi sem var 13.000 smálestir að stærð. Skipið fór af

stað þ. 27. nóvember 1948, fékk vont veður á leiðinni og kom ekki

til Bremerhaven fyrr en 7. desember.

Fjórar deildir í skipinu, 3E, 3F, 4E og 4F, voru teknar til þessara

athugana vegna þess að hreyfingin í þeim af sjógangi var sú sama.

Af þeim 485 mönnum, sem í þessum deildum voru, fékk helmingur-

inn nýja sjóveikismeðalið dramamin, eða töflu, sem var eins að út-

liti, en án meðalsins, um leið og skipið lét úr höfn frá New York.

Hinn helmingurinn fékk dramamin, eða gerfitöflu, tveim til tólf

klukkutímum eftir að sjóveiki varð vart. Nægilega margir fengu gerfi-

töflur til samanburðar. Dramamin var gefið í 100 mg. skömmtum

fimmta hvern klukkutíma og fyrir svefn. Lyfið kom í veg fyrir sjó-

veiki hjá öllum nema tveim mönnum af 134 í deild 8E. Gerfitaflan

hindraði ekki sjóveiki hjá neinum í 3F. Þeim 34 mönnum, sem veikt-

ust þar, létti algerlega innan klukkutíma sjóveikin, eftir að þeir fengu

dramamin. Lyfið læknaði líka algerlega 13 menn, sem urðu sjóveikir

í 4E, úr því að þrír klukkutímar eða lengra var liðið frá því að þeir

létu úr höfn. Gerfitafla bætti ekki líðan 14 manna, sem urðu sjó-

veikir í 4F, en þeim létti öllum algerlega hálftíma eftir að þeir fengu

dramamin. Nítján mönnum, sem urðu sjóveikir 3 klukkutímum eða

meira eftir brottför frá New York, létti eftir að þeir fengu gerfitöfl-

urnar og þurftu engra lyfja með upp frá því. AIls voru 881 í öðrum

deildum skipsins. Af þeim urðu 195 illa sjóveikir. Af þeim batnaði

187 algerlega hálftíma eftir að þeir fengu dramamin. Ferðin stóð yfir í

10 daga og lyfið var gefið 389 sjóveikum mönnum. Af þeim batnaði

372 algerlega innan klukkustundar frá því að þeir tóku inn 100 mg.

af meðalinu. Seytján mönnum létti aðeins að' nokkru leyti.

Dramamin er tekið inn, en ef uppköst eru mikil, svo að hætt er

við að sjúklingurinn kasti því upp, má láta það inn í endaþarminn.

4

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8