Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Heilbrigšismįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Heilbrigšismįl

						Það er ekki eitrað og engra slæmra aukaverkana varð vart þótt menn

tækju 400 mg. á sólarhring.

(Bull. Johns Hopkins Hospital, maí 1949)

Para-aminosalisylsýra gegn berklaveiki

Þetta lyf er farið að nota töluvert gegn berklaveiki og er enginn

efi á því, að það hefur skað'leg áhrif á berklasýklana. Tveir enskir

læknar, Nagley og Logg, birtu skýrslu um reynslu sína af þessu lyfi

ekki alls fyrir löngu og sýnir hún, að þetta lyf hefur mest áhrif á

fyrstu stigum sjúkdómsins, einkum þegar sjúklingurinn er með sótt-

hita vegna eituráhrifa berklasýklanna. Hitinn lækkar, blóðsökk minnk-

ár og sjúklingnum fer að líða betur löngu áður en batamerki sjást á

röntgenmynd. Með því að nota þetta meðal er oft hægt að flýta fyrir

hjöðnunarmeðferð á lunganu. Sumir halda að lyf þetta verki á lungna-

vefinn. þannig að hann styrkist í viðureigninni við berklasýkilinn.

Áberandi er hve góð áhrif meðalið hefur á sjúklinginn í þá átt að

bæta líðan hans.

Þetta lyf er mjög lítið eitrað og berklasýklarnir virðast ekki öðl-

ast aukna mótstöðu gegn því; auk þess er það tiltölulega ódýrt. Þetta

eru allt kostir samanborið við streptomycin. Ekki ætti samt að spara

streptomycin við bráðaberkla, einkum eftir skurðaðgerðir, en nota má

para-aminosahsylsýru með því eða á eftir.

Áfengi

Islendingar og áfengi virðist ekki eiga vel saman. Vegna þess hve

slæm sambúðin var slitnaði upp úr samvistum 1914, en þá þótti ekki

taka betra við, þegar menn fóru að' brugga, smygla, drekka óþverra

og ólyfjan, og þótti ástandið svo bágborið, að loks var tekið saman

aftur. Og nú eru flestir orðnir óánægðir með ástandið, þykir það

aldrei hafa verið verra en nú. Við megum segja við áfengið eins og

Fransmað'urinn við konuna: „Hvorki með þér né án þín get ég lifað".

Nýlega bað kona mig fyrir son sinn, hvort ekki væri unnt að

gera eitthvað fyrir hann, svo að' hann yrði ekki Bakkusi gersamlega að

bráð. Pilturinn kom til mín og ég fór að yfirheyra hann Hann er 26 ára

og hefur drukkið meira og minna síðan hann var 18 ára. Nú er það

orðið svo, að þegar hann fær kaup sitt greitt á föstudögum, 500—600

kr., fer hann upp í Afengisverzlun ríkisins og kaupir sér vín, venju-

lega 3 flöskur af brennivíni: eina fyrir föstudagskvöldið og hinar fyrir

helgina. Svo er byrjað að drekka með félögunum og ekki staðnæmst

við eina flösku heldur drukkið upp úr öllum þremur og oft keypt ein

í viðbót fyrir 100 kr. á svörtum markaði. A laugardagsmorguninn

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8