Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Heilbrigšismįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Heilbrigšismįl

						að binda bækur, smíða, búa til módel-flugvélar, framleiða ýmislegt

úr plastik, teikna, mála og móta í leir og gibs, allt undir handleiðslu

kunnáttumanna.

Margt af þessu unga fólki þekkir ekki sjálft sig, veit ekki á hvaða

sviði hæfileikar þess eru. En hamingjan er fólgin í því að njóta hæfi-

leika sinna, sagði Aristoteles og það er jafnsatt enn í dag og á hans

tímum. Unga fólkið þarf að fá tækifæri til að þekkja hæfleika sína

og síðan að hafa tækifæri til að njóta þeirra. í Ameríku er mikið

farið að gera að því að prófa hæfileika manna og hefur það yfirleitt

gefizt vel. Eg hef komið' í slíka stofnun í New York og fylgzt með

slíkum prófum. Þangað kom mikið af ungu fólki til að fá sig prófað

og engum gat dulizt að flestir urðu miklu fróðari um sjálfa sig við

þau próf.

Við þurfum að gera meira en að banna unga fólkinu að skemmta

sér lengur en til klukkan tvö á nóttunni. Við þurfum að' gefa því tæki-

færi til að njóta hæfileika sinna og sannfæra það um, að það getur

gert ótalmargt sem er miklu skemmtilegra en að drekka áfengi. Og

þegar unga fólkið hefur lært að dunda við hugðarefni sín, fer það að

hugsa öðru vísi um þá sem sitja yfir drykkju. Það' vorkennir þeim og

þá skapast það almenningsálit sem þarf til að hefja sig upp úr því

ófremdarástandi, sem nú er ríkjandi.

Skrásetning krabbameinssjúklinga

Krabbameinsfélag Reykjavíkur hefur skrifað öllum læknum lands-

ins og beðið þá um upplýsingar um alla krabbameinssjúklinga, sem

þeir hafa undir hendi. Hingað til hafa engar skýrslur fengizt um fjölda

krabbameinssjúklinga hér á landi, heldur aðeins um tölu þeirra sem

deyja árlega úr sjúkdómnum. En hitt er ekki síður vert að vita, hve

margir læknast af sjúkdómnum og lifa hann af. Þórarinn læknir Sveins-

son hefur tekið að sér að halda sjúkhngaskrána og er ætlunin, að

fylgjast með hverjum sjúklingi unz sýnt er hver afdrif hans verða.

Til þess að geta náð árangri í viðureigninni við þennan skæða óvin

er fyrsta skilyrðið að þekkja hann, fá ljósa hugmynd um ástandið

eins og það er hér á landi nú, svo að samanburður verði mögulegur

seinna meir. Nákvæm skrá yfir alla krabbameinssjúklinga er nauðsyn-

legur grundvöllur undir þeirri starfsemi sem félagið beitir sér fyrir.

FullorSnar frumbyrjur

Það hei'ur lengi verið sagt og því almennt trúað, að hættulegt geti

verið' fyrir konur að byrja seint að eiga börnin. Þegar konan nálgaðist

fertugsaldurinn átti fæðingin að verða bæði henni og barninu mun

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8