Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Heilbrigšismįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga breidd


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Heilbrigšismįl

						Aukið f jármagn —

auknir skattar

Er nú í byrjun apríl sýnileg í reynd

stefna stjórnarinnar í þessum mála-

flokki?

Mjög verulegar breytingar áttu

sér stað frá þeim fjárlagafrum-

vörpum sem lögð voru fram af

vinstri stjórninni annars vegar og

Alþýðuflokksstjórninni hins vegar

þar til að fjárlög ársins 1980 voru

afgreidd. Þessar breytingar snerta

alveg sérstaklega heilbrigðismálin

og það er satt að segja furðulegt

miðað við öll þau blöð sem hér eru

gefin út upp á hvern einasta dag að

fjölmiðlar skuli ekki gera sér að því

er virðist neina grein fyrir þeim

tíðindum sem áttu sér stað með

fjárlagaafgreiðslunni á sviði heil-

brigðismála. í þeim efnum vil ég t.

d. nefna að í fjárlagafrumvarpi

Tómasar Árnasonar og Sighvats

Björgvinssonar var gert ráð fyrir

2200 milljónum króna í framlag

rikisins til bygginga sjúkrahúsa og

heilsugæslustöðva á móts við sveit-

arfélögin. Þegar upp var staðið og

gengið var frá fjárlögum 2. apríl

1980 var þessi tala ekki 2200 mill-

jónir heldur 3080 milljónir og hafði

hækkað verulega umfram verð-

lagsforsendur frá fjárlögum ársins

1979. Þessi upphæð sem þarna

bættist við, upp a heilar 880 mill-

jónir króna. á þessum hluta ársins

sem eftir er munar mjög verulegu. I

því sambandi vil ég nefna að með

þessum fjárlögum er tekin ákvörð-

un um byggingu B-álmu Borgar-

spítalans í Reykjavík og varið til

þess 300 milljónum króna jafn-

framt því sem gert er ráð fyrir fjár-

munum til að ljúka við þjónustu-

álmu Borgarspítalans. Þá er í þess-

um upphæðum um að ræða mjög

myndarlegar framkvæmdir annars

staðar á landinu, eins og t. d. á Ak-

ureyri, en þar er stærsta fram-

kvæmd heilbrigðiskerfisins á ein-

um stað á þessu ári.

I meðförum Alþingis á fjárlaga-

frumvarpinu hafa átt sér stað mjög

veigamiklar hækkanir á framlög-

um til Heilbrigðiseftirlits ríkisins og

Matvælarannsókna ríkisins, svo ég

nefni tvö dæmi, sömuleiðis á fjár-

munum til Krabbameinsfélagsins

og fleiri dæmi mætti tína upp sem

eru ákaflega þýðingarmikil.

Ég vil einnig nefna í sambandi

við heilbrigðismálin og fjárlögin,

að tekin hefur verið ákvörðun um

það að þeir tveir þriðju hlutar geð-

deildarinnarsem þegareru tilbúnir

verða teknir í notkun á þessu ári.

Til þess eru um 40 nýjar stöður

leyfðar samkvæmt fjárlögum fyrir

árið 1980. Þá er einnig gert ráð fyrir

því að setja aukinn kraft á það að

innrétta þann þriðjung geðdeildar-

byggingarinnar sem enn er aðeins

fokheldur. Það sem kannske mest-

um tíðindum sætir fyrir heilbrigð-

isstéttirnar í fjárlagaafgreiðslunni

er sú staðreynd að þar er gert ráð

fyrir að verja 100 milljónum krcSna

til undirbúnings svokallaðrar

K-byggingar á Landspítalalóðinni

og er þar með stigið skref, þó lítið

sé, í þá att að veruleg framþróun

eigi sér stað í þessari miðstöð

læknavísinda hér á Islandi.

Alls er varið til heilbrigðis- og

Með samþykkt fjárlaga fyrir árið

1980 var ákveðið að hefja fram-

kvæmdir við svokallaða B-álmu

Borgarspítalans en í henni verða

einkum deildir fyrir langlegusjúkl-

inga. Álman er í vestur frá núverandi

byggingu og var grunnurinn steyptur

ífyrra.                                     Mynd.j.R.

tryggingamála II6 milljörðum

króna á þessu ári og er það um 72%

hækkun frá fyrra ári, en fjárlögin

hækka alls milli áranna 1979 og

1980 um 64%.

Áfengis- og tóbaksvarnir

sameinaðar almennri

heilbrigðisvernd?

Sagt er að betra sé heilt en vel

gróiö. Einnig hefur þvl verið haldiö

fram að þeir fjármunir sem notaðir

eru til aðgerða sem komið geta i veg

fyrir sjúkdóma eða auðveldað að

þeir verði greindir á byrjunarstigi

skili miklum arði síðar meir vegna

útgjalda lil iækninga. Hyggst þú

auka veg fyrirbyggjandi aðgerða,

sjúkdómaleitar og heilbrigðis-

frœðslu?

Ég er tvímælalaust þeirrar skoð-

unar að það beri að leggja mjög

Fréttabréf um HEILBRIGÐISMAL    1/1980    7

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36