Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Heilbrigšismįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Heilbrigšismįl

						Krampaköst

hjá ungum börnum

Grein eftir

Þröst Laxdal

Krampar í einhverri mynd eru

nokkuð algengir meðal barna.

Talið er að þrjú til fimm af hverjum

hundrað börnum fái einhvers

konar krampakóst fyrir skólaaldur.

Þetta virðist í fljótu bragði vera

ótrúlega há tíðni, og er því rétt að

staldra við og íhuga hvað átt er við

þegar talað er um krampa.

Krampar stafa af skyndilegum

og óhóflegum spennusveiflum í

mismörgum heilafrumum, hvar

sem er innan heilabúsins. Geta

krampar því lýst sér á ýmsan hátt

eftir staðsetningu og útbreiðslu

slikrar ertingar. Oftast er þó um að

ræða einhverja vöðvakippi, ósjálf-

ráðar hreyfingar, fjarrænu eða

jafnvel algert meðvitundarleysi

sem staðið getur allt frá fáeinum

sekúndum og upp í allmargar

mínútur, jafnvel hugsanlega í

klukkustundir. Orsakir slíkra

krampa eru fjölmargar, bæði

þekktar og óþekktar.

Krampar eru í sjálfu sér ekki

sjúkdómur heldur aðeins einkenni

sem geta fylgt ýmsum sjúkdómum,

þar á meðal flogaveiki. Þótt barn

hafi fengið endurtekna krampa

þarf það ekki endilega að vera

flogaveikt. Raunar er mun líklegra

að svo sé ekki, þar sem aðeins eitt af

hverjum tíu bórnum sem fá

krampa er með raunverulega

flogaveiki.

Hér verður einungis rætt um þá

tvo krampaflokka sem lang al-

gengastir eru hjá ungum börnum,

annars vegar svokallaða áreiti-

krampa og hins vegar hitakrampa.

Hvorugur þessara krampaflokka

telst til flogaveiki enda eru þeir að-

eins framkallaðir af tímabundnum

kringumstæðum, ytri eða innri.

ÁREITIKRAMPAR. Margir

þekkja áreitikrampana undir nöfn-

um eins og frekjukrampar, bláma-

köst eða andarteppuköst. Þessir

krampar stafa ávallt af áreiti frá

umhverfinu, einhverju sem veldur

reiði, vonbrigðum, hræðslu eða

sársauka hjá barninu.

Oftast er um að ræða barn á

aldrinum frá eins árs til þrtggja ára,

gjarnan skapríkt og tilfinninga-

næmt. Við eitthvert skyndilegt

mótlæti eða sársauka, t.d. högg á

hófuð, rekur barnið upp grát, eða

ætlar að fara að gráta, missir síðan

andann og blánar eða fölnar upp.

Langoftast nær barnið andanum

aftur áður en meira gerist en

stundum verður súrefnisskorturinn

til heilans það langvinnur að barn-

ið dettur niður meðvitundarlaust,

ranghvolfir augum, sperrir höfuð

aftur og fær allsherjar krampa-

rykki. Þegar svo er komið er

stundum erfitt að greina þessa

krampa frá venjulegum flogaveiki-

krömpum, en þá mætti minnast

þess sem áður sagði að hér er alltaf

um undanfarandi áreiti að ræða.

Þannig koma áreitikramparnir t.d.

aldrei fram í svefni. Það er áríðandi

að gera þennan greinarmun því að

við þessum krömpum koma floga-

veikilyf ekki að neinu gagni, og

yfirleitt er engin lyfjameðferð

nauðsynleg.

Tíðni áreitikrampanna er mjög

misjöfn, allt frá mörgum köstum á

dag og niður í köst á margra mán-

aða fresti. Þar sem tímalengd hvers

kasts nær sjaldnast heilli mínútu

virðist heilafrumunum ekki hætta

búin af völdum súrefnisskorts, og

um síðbúin eftirköst, eins og

greindarskerðingu eða flogaveiki,

er ekki að ræða. Framtíðarhorfur

þessara barna eru því mjög góðar

og áreitiköstin eldast alltaf af þeim

Kæling húðarinnar er ein áhrifarík-

asta leiðin til að tækka sótthita.

Þessi aðferð er einnig nothæf þegar

börn fá hitakrampa og bendir

greinarhöfundur á að þá sé til dæmis

hægt að klæða barnið úr hverri

spjör, opna glugga og leggja sval-

andi vatnsbakstra á húðina. Mynd: j.l.

Fréttabréf um HEILBRIGDISMAL   1/1980   25

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36