mínútur. Við þetta lækkar líkams- hitinn skjótlega um eitt eða tvö stig og mun minni líkur eru á frekari krömpum næstu klukkutímana. Einhver kann að spyrja hvort það slái ekki að blessuðu barninu og það fái lungnabólgu við þessar mannvonskulegu aðfarir. Því er fljótsvarað: Nei. Slíkt verður ekki nema við langvarandi kulda og vosbúð þannig að mótstaða líkam- ans minnki gagnvart sýkingum frá umhverfinu. Sú trú virðist ennþá ótrúlega lífseig, einkum hjá eldri kynslóðinni, að hita beri að reka út með svita og því sé rétt að dúða börn með háan hita sem allra mest. Einmitt þessi misskilningur hefur beinlínis leitt til ófárra hitakrampa áður fyrr. Börn með um og yfir 40 stiga hita eiga að fá að vera fáklædd og sofa undir þunnri ábreiðu, ekki þykkri sæng. Þannig líður börn- unum yfirleitt best og þannig losn- ar líkaminn best við umframhita. I vel flestum tilvikum tel ég rétt að kallað sé á lækni þegar barn fær hitakrampa, a.m.k. í meiri háttar tilfellum. Væri barnið ennþá í krampakastinu mætti gefa lyf í æð eða jafnvel í endaþarm til að stöðva kastið, og annars konar langvirkara krampalyfi mætti síðan dæla í vöðva eða gefa inn í töfluformi til að hindra frekari krampaköst næsta sólarhringinn. Um leið yrði metið hvort meðferðar væri þörf gegn hitavaldinum sjálfum, eða jafnvel hvort ástæða væri til að leggja barnið inn á spítala til frek- ari rannsókna og meðferðar. Andstætt áreitikrömpunum geta hitakramparnir hugsanlega leitt til flogaveiki síðar meir. Þetta er þó sem betur fer tiltölulega sjaldgæft og yfirleitt aðeins ef kramparnir eru óvenju illvígir og standa Iengur en í fimmtán mínútur og stuðla þar með að varanlegum breytingum í vissum heilafrumum, af völdum súrefnisskorts. Oftast er mögulegt að koma í veg fyrir frekari hitakrampa í síðari hitaköstum, en aðeins ef daglegri fyrirbyggjandi lyfjameðferð er beitt, í hæfilega stórum skömmt- um. Yfirleitt er þó ekki farið út í STUÐMNGUR VII) HONDURAS Fyrir hönd Krabbameinsfélags- ins hefur nýstofnuðu krabba- meinsfélagi í Hondúras verið af- hent gjöf til eflingar krabbameins- lækninga þar í landi. Forsaga málsins er sú að á fundi Kvenfélags Sameinuðu þjóðanna i Tegucigalpa, höfuðborginni í Hondúras, 14. mars 1979 var ákveðið að félagskonur, sem eru eiginkonur starfsmanna Samein- uðu þjóðanna, aðstoðuðu krabba- LA ASOCIACIQN HONDURENA DE LUCHA CONTRA EL CANCER HACE DONACION íln ^ de ^'narsson entrega un p| nativo de mil dólares o^nientes de la Sociedad del l^ n«r de Islandia, al licenciado As!,nUel Euceda' tesorero de la ^ciación Hondurefia de Lucha ,e n,ra el Cáncer, fundada » lentemente en esta capital. acBa'ecen con ella en el orden Pl0stumbrado-. Gloria de chardo, Chita de Colíndres, r>. aenta de la Asociación, ara riö r» r. ae Carbajo, presidenta del ÖMii"1''6 d e Damas 2,1 °EA"BID' doctor Juan De aVa, director del H0 rtarner|to de Oncología del iian^'tal San Felipe, Nora de . V la senora Cecilia Ruiz. '\s°s estatutos de esta Pr7'a«i6n 'niera se plasmaron en su M - Jsamblea a la que raje rr|eron personalidades Chi»an.tes de la metrópoli. Dona 'ta dp r«i' , de t-onndres en su caracter ^["'denta de la Asociación expresó en aquella ocasión, conceptos alusivos a la creación de tan benéfica entidad, delineó el historial que precedió a su fundación y agradeció la promesa de ayuda del jefe de la Junta .Militar de Gobierno, de otros altos funcionarios públicos y de repr esentantes de la Organización Panamericana de la Salud, BID, y de la OEA. Cabe mencionar que la senora de Einarsson, en una visita a su país, logró la entrega de dicho donativo, como una demostración de buena voluntad y ayuda de la Sociedad del Cáncer de aquel país. meinsfélag, sem þá átti að fara að stofna, við að breyta hluta af gömlum spítala (San Felipe) pannig að hann gæti þjónað krabbameinssjúklingum, en Húndúras er verst á vegi statt í þessum efnum af öllum ríkjum Mið-Ameríku. Var ákveðið að hver kona leitaði aðstoðar krabba- meinssamtaka í sínu heimalandi. Ein félagskvennanna er Aðal- heiður Guðmundsdóttir, kona Sveins Einarssonar verkfræðings, og með bréfi dags. 2. maí 1979 fór hún fram á stuðning Krabba- meinsfélagsins. Var erindinu tekið vel og ákveðið að biðja Aðalheiði að afhenda þessu systurfélagi ávís- un að upphæð eitt þúsund dollarar (verðgildi nú um 400.000 kr.) frá Krabbameinsfélagi íslands og Krabbameinsfélagi Reykjavíkur. í bréfi sem nýlega barst segir Aðalheiður að 29. janúar hafi hún afhent gjöfina stjórn hins nýstofn- aða félags, Asociación Hondurena de Lucha contra el Cáncer, að við- stöddum yfirlækni krabbameins- deildar sjúkrahússins. Segir Aðal- heiður í bréfinu að mikill fengur sé að þessu framlagi að heiman". -F- Fréttabrél um HEILBRIGOISMAL 1/1980 27