Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Heilbrigšismįl

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Heilbrigšismįl

						Tóbakssalan 1979:

TÆP 469 TOM

Árið 1979 voru seld 468.996

kg af tóbaksvörum frá Áfengis-

og tóbaksverslun ríkisins. Þetta

er um 4,4% meira en árið áður.

Aukninguna má skýra að hluta

með íbúafjölgun og aukinni

sölu á „léttari" sígarettum.

Tóbakssalan á hvern íbúa var

í fyrra um 2080 grömm en var

áriðáður um 2010 g. Hæst hefur

hún komist árið 1974 í 2174gog

árin 1975 og 1976 var hún

einnig meiri en í fyrra.

Sé neyslunni deilt niður á

íbúa 16 ára og eldri verður

heildarneysla tóbaks á hvern

fullorðinn landsmann árið 1979

um 2980 grömm. I ýmsum ná-

lægum löndum er tóbaksneysl-

an (þannig reiknuð) nokkru

meiri, t. d. í Hollandi (4030 g),

Bandaríkjunum (4260 g) og

Kanada (4400 g). 1 flestum þró-

unarlöndum er neyslan hins

vegar ennþá mun minni, t. d. á

lndlandi (770 g).

Sala á vindlum minnkaði á

síðasta ári um 5,6% en þó seld-

ust hér rúmlega 15 milljón

stykki eða tæp 37,6 tonn sé gert

ráð fyrir að hver vindill vegi að

jafnaði 2,5 g.

Um 4% samdráttur varð í sölu

á reyktóbaki (píputóbaki) og

var salan um 44,6 tonn.

Neftóbakssalan í fyrra var

2,9% minni en árið áður. Sala

þess nam 13,9 tonnum en sala á

munntóbaki aðeins 109 kg.

Sígaretturnar eru lang mest

selda tóbakið. Hér seldust í

fyrra rúm 372,7 tonn eða meira

en milljón stykki á dag. Aukn-

ingin frá fyrra ári er um 7%.

Nú eru 80,3% seldra sígaretta

hér með síu (filter) en þetta

hlutfall var 32,4% fyrir ellefu

árum. Magn tjóru og nikótíns í

sígarettum hefur lækkað á sama

tíma, og sé tekið mið af reynslu

nágrannaþjóðanna ætti slík

lækkun að verða til þess að fleiri

sígarettur seldust. Vegið meðal-

tal tjöru í sígarettum á íslensk-

um markaði árið 1979 var 19 mg

sem er 6% minna en fyrir

þremur árum (átt er við tjöru í

þeim reyk sem reykingamaður-

inn dregur að sér miðað við til-

tekinn staðlaðan reykinga-

máta). Sambærilegar tölur í

Bandaríkjunum lækkuðu úr 37

mg i 17 mg frá 1957 til 1977 og í

Bretlandi úr 31 mg í 18 mg frá

1965 til 1975. Mesta tjara í síga-

rettum sem hér eru til sölu er 35

mg en minnst 2 mg. Meðalmagn

nikótíns hér er 1,3 mg og af

kolsýrlingi eru um 16 mg í reyk

hverrar sígarettu.

Árið 1973 samþykkti ráð-

gjafanefnd Evrópuráðsins að

hvetja stjórnir aðildarríkjanna

til að banna framleiðslu og sölu

á sígarettum sem gefa meira en

15 mg af tjöru og 1 mg af nikó-

tíni. Konunglega breska lækna-

félagið hefur tekið undir þessa

stefnu. I fyrra voru 86% af þeim

sígarettum sem hér voru seldar

yfir tilgreindum mörkum.

Fjölbreytt úrval tóbaksvarn-

ings er hér á boðstólum og varla

er það út af fyrir sig líklegt til að

draga úr sólunni, nema síður sé.

Alls voru seldar hjá ÁTVR í

fyrra 45 tegundir af sígarettum,

103 tegundir af vindlum og 25

tegundir af reyktóbaki.

Eins og áður sagði vega síga-

retturnar þyngst í tóbakssölunni

eða 79,48% (voru 3,1% af söl-

unni fyrir um 65 árum), næst

kemur reyktóbakið með 9,52%

(10,0%), síðan vindlar með

8,01% (10,3%), þá neftóbakið

með 2,97% (35,2%) og loks

munntóbak með 0,02% (en var

41,3% af sölunni áöðrum áratug

þessarar aldar).

Heimildir: Eigin útreikningar

greinarhöfundar byggðir á sölutólum

Afengis- og tóbaksverslunar ríkisins.

Skýrsla bandaríska landlœknisins,

Smoking and Heallh, birl 11. janúar

1979. World Smoking & Health,

mars 1979, bls. 23. Greinar eftir

Malini Seshardi og Mike Daube i

frétt WHO um alþjóðlegan heil-

brigðisdag 1980.

	TÓBAKSSALA		A.T	.V.R.      EFTIR     ARSFJÓRÐUNGUM			

	1974	1975		1976	1977	1978	1979

Jan.-raars April-júni Júlí-sept. Okt.-de s.	116.100 kg 118.495 kg 124.427 kg 108.769  kg	107.768 125.109 117.488 115.485	kg kg kg kg	113.436  kg 121.824 kg 121.150 kg 121.078 kg	111.847  kg 104.320  kg 110.578 kg 116.994  kg	111.466  kg 119.287  kg 109.903 kg 108.608  kg	113.204 kg 119.399  kg 119.859 kg 116.534 kg

Samtals	467.791   kg	465.850	kg	477.488  kg	443.739   kg	449.264  kg	468.996 kg

34    Fréttabréf um HEILBRIGÐISMÁL   1/1980

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36