Fréttablaðið - 23.01.2010, Blaðsíða 60

Fréttablaðið - 23.01.2010, Blaðsíða 60
32 23. janúar 2010 LAUGARDAGUR timamot@frettabladid.is Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is. Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettab- ladid.is eða hringja í síma 512 5000. GUÐNÝ HALLDÓRSDÓTTIR KVIK- MYNDAGERÐARKONA FÆDDIST ÞENNAN DAG ÁRIÐ 1954. „Bjartsýnin hefur alltaf komið mér í bobba.“ Guðný lét þessi orð falla er hún tók við bjartsýnisverð- laununum árið 2007. Hún er þekkt fyrir myndir sínar, svo sem Ungfrúin góða og húsið, Karlakórinn Heklu, Stellu í framboði og Veðramót. MERKISATBURÐIR 1741 Sjö manns farast í hús- bruna á Hvítárvöllum í Borgarfirði. 1907 Jón forseti, fyrsti togari sem smíðaður er fyrir Ís- lendinga, kemur til lands- ins. 1943 Duke Ellington spilar í fyrsta sinn í Carnegie Hall í New York. 1973 Eldgos hefst á Heimaey um klukkan tvö að nóttu. 1988 Mesta frost í 70 ár mælist í Möðrudal á Fjöllum, -32 stig. 2005 Viktor Júsjenkó tekur við embætti sem þriðji forseti Úkraínu. 2007 Ríkisútvarpinu er breytt í opinbert hlutafélag með lögum á Alþingi. Guðmunda býr í reisulegu, rauðu húsi sem hæfir henni vel. „Hér hef ég verið í yfir 20 ár,“ segir hún. „Sif dóttir mín og hennar maður búa á efri hæðinni. Auðvitað er dýrt að eiga timburhús en indælt. Það er lifandi.“ Við setj- umst inn í litla og hlýlega stofu. „Má ég halda áfram að reykja?“ spyr hún og tekur hálfreykta sígarettu. „Ég byrjaði ekki fyrr en ég var fertug. Missti söng- röddina þrjátíu og sjö ára og hafði allt- af langað að reykja en fannst það ekki fara saman við sönginn. Ég smápúaði í fyrstu en svo varð þetta að ávana.“ Þessi játning rifjar upp bókina um Guðmundu, Lífsjátningu sem kom út 1981 og var skrifuð af Ingólfi Marg- eirssyni rithöfundi. Þar kom hún til dyranna eins og hún var klædd. Hún hefur ekkert breyst. „Ég er af Arnardalsættinni,“ segir Guðmunda innt eftir ætt og uppruna. „Móðir mín hét Sigríður Jensdóttir og var frá Arnardal við Ísafjörð en faðir minn hét Elías Magnússon og var for- maður í Bolungarvík og fórst þaðan líka. Það var 1923. Ég var vel á fjórða ári og systir mín, Þorgerður Nanna, sex mánaða en Elísabet, systir mín af fyrra hjónabandi mömmu var á ungl- ingsaldri.“ Tólf ára flutti Guðmunda til Reykja- víkur með móður sinni og systrum og fimm árum síðar til Kaupmannahafn- ar – ein. „Ég vildi læra og var komin í hjúkrunarnám úti en var líka allt- af syngjandi. Það varð úr að mér var beint inn á þá braut og ég komst í nám við Konservatoríið. Ég var í Kaup- mannahöfn öll stríðsárin og var orðin gift kona og móðir þegar ég kom heim. Eiginmaðurinn var danskur gullsmið- ur sem hét Henrik og við áttum litla dóttur sem hét Bergþóra en misstum hana unga. Síðar eignuðumst við börn- in Hans Albert og Sif.“ Fyrsta óperuhlutverk Guðmundu var í Rigoletto eftir Verdi, í nýju Þjóð- leikhúsi 1951. „Þetta var menningar- viðburður sem fékk góða krítik,“ segir hún og rifjar líka upp eftirminnilegt hlutverk sem Madame Flora í óper- unni Miðlinum í Iðnó. „Maður lærði alltaf eitthvað nýtt á hverju hlutverki og gleðin var mikil yfir að geta glatt aðra,“ segir hún og geislar. Eins og gerist eftir langa ævi eru endurminningarnar bæði ljúfar og sárar. Guðmunda rifjar upp söngnám í París, búsetu í New York, skilnað við Henrik, hjónaband með Sverri Kristj- ánssyni sagnfræðingi og söngkennslu í sextíu ár. Að missa söngröddina hlýt- ur að hafa verið óskaplegt áfall. „Já, það var svipað eins og ef píanóleik- ari vaknaði upp og hefði engar hend- ur. Sorg er óttaleg til að byrja með en maður lærir að lifa með henni og temja sig.“ Hún talar af reynslu. Nýlega sá hún á eftir syni sínum úr þessu jarð- lífi. „Þetta er Hans Albert,“ segir hún og bendir á mynd af fallegum manni í hillu rétt hjá okkur. „Hann dó núna rétt fyrir jólin af völdum krabbameins. Var búinn að búa í yfir þrjátíu ár í Lúxem- borg og starfa lengst af sem flugmað- ur. Konan hans er frá Selfossi, indæl stólpakona og þau eiga tvö börn.“ Spurð hvort listin gangi í erfðir upplýsir Guðmunda að svo sé og nefn- ir sem dæmi barnabörnin Sigurlaugu Knudsen söngkonu og Guðmund Elías Knudsen dansara. „Sigurlaug á litla stúlku, ekki tveggja ára, og þegar hún grætur þarf bara að syngja fyrir hana, þá steinþagnar hún og fer að brosa.“ Varla er hægt að sleppa Guðmundu svo að ekki sé minnst á leik hennar á hvíta tjaldinu. „Það var Hrafn Gunn- laugsson sem uppgötvaði mig 1984,“ segir hún glaðlega. „Ég er búin að vera í mörgum smáhlutverkum, síðast hjá Baltasar í Mýrinni.“ Skyldi hún hafa fengið einhver tilboð nýlega? „Nei, þú mátt skrifa að ég sé á lausu!“ Síðasta spurning. Ætlar hún ekki að halda upp á afmælið? „Jú, ég ætla að halda upp á það,“ segir hún ákveðin. „Ég var búin að hætta við það en dótt- ir mín og tengdadóttir tóku það ekki í mál. Það er slíkur kraftur í þeim að maður bara fer undir borðið.“ gun@frettabladid.is GUÐMUNDA ELÍASDÓTTIR SÖNGKONA OG KENNARI: ER NÍUTÍU ÁRA Í DAG Þú mátt skrifa að ég sé á lausu ÓPERUSÖNGKONAN „Maður lærði alltaf eitthvað nýtt á hverju hlutverki og gleðin var mikil yfir að geta glatt aðra,“ segir Guðmunda. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Fyrsta skipi Eim- skipafélags Íslands var hleypt af stokk- unum í Kaupmanna- höfn þennan mán- aðardag árið 1915. Það var Gullfoss og hann kom til landsins tæpum þremur mán- uðum síðar. Hann var smíðaður hjá Köben- havns Flydedocks og Skibsværft. Gullfoss var 1.414 tonna skip. Hann var 70 metrar á lengd, 10,7 metrar á breidd og í honum var 1200 hestafla gufuvél og kom til landsins 16. apríl 1915. Eimskipafélagið hafði verið stofnað árið áður og reyndist áhuginn fyrir skipakaupum svo mikill bæði til sjávar og sveita að þrátt fyrir almenna fátækt lögðu þúsundir manna fram hlutafé og svar- aði hluthafafjöldinn til 15,5 prósenta þjóðar- innar. Litið var á stofn- un félagsins sem þátt í sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Gullfoss var fyrsta farþegaskip Íslendinga en auk hans var strax lagður grunnur að smíði Goðafoss sem kom til lands- ins 13. júlí. Fyrstu áætlunarsiglingar Eimskips voru milli Íslands og Danmerkur með viðkomu í Bretlandi. ÞETTA GERÐIST: 23. JANÚAR 1915 Gullfossi hleypt af stokkunum Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Lydía Pálmarsdóttir Eskihlíð 5, sem lést á Droplaugarstöðum hinn 17. janúar sl., verður jarðsungin frá Háteigskirkju miðvikudaginn 27. janúar kl. 13.00. Pálmar Árni Sigurbergsson Jóhanna Snorradóttir Ólafur Viggó Sigurbergsson Sólrún Jónasdóttir Grétar Sigurbergsson Kristín Hallgrímsdóttir Friðrik Sigurbergsson Árný Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, sonur, bróðir og mágur, Jóhannes Bekk Ingason kennari, Lambastaðabraut 13, Seltjarnarnesi, andaðist á heimili sínu fimmtudaginn 21. janúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Alda Svanhildur Gísladóttir Jón Þór Þorleifsson Ingi Einar Jóhannesson Aðalbjörg Sigurðardóttir Ingi Einar Jóhannesson Elvar Guðmundur Ingason Dagný Selma Geirsdóttir Brynjar Ingason Guðbjörg Ragnheiður Jónsdóttir Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát eiginmanns míns, föður okkar, tengda- föður, afa og langafa, Svans Hjartarsonar Dalbraut 10, Búðardal. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deildum 11B og 11E Landspítalans við Hringbraut fyrir umhyggju og hlý- hug. Edda Tryggvadóttir Elísabet Svansdóttir Magnús A. Jónsson Sigurður Svansson Ólöf Eðvarðsdóttir Bryndís Svansdóttir Halldór L. Arnarson Arnar Svansson Sólrún L. Þórðardóttir barnabörn og langafabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, dóttur, systur, mágkonu og ömmu, Sigureyjar Guðrúnar Lúðvíksdóttur Jörundarholti 4, Akranesi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Akraness og allra annarra er veittu okkur stuðning á erfiðum stundum. Hlýhugur og stuðningur ykkar hefur verið ómetanlegur. Þorsteinn Kristinn Jóhannesson Lúðvík Þorsteinsson Nanna Sigurðardóttir Jóhann Þorsteinsson Kristín Halla Stefánsdóttir Rúna Dís Þorsteinsdóttir Hilmar Smári Sigurðsson Lúðvík Björnsson Björn Lúðvíksson Þórunn Sveina Hreinsdóttir Fjóla Lúðvíksdóttir Jóhann Þór Sigurðsson og ömmubörn. Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður og ömmu, Sveinfríðar Jóhannsdóttur Holtateigi 26, Akureyri. Hermann Jónsson Kristín Hermannsdóttir Sæmundur Sigtryggsson Sigurður Hermannsson Jóhanna Jóhannesdóttir Ólafur Hermannsson Ester Lára Magnúsdóttir Fjóla Hermannsdóttir Carsten Tarnow og ömmubörn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.