Fréttablaðið - 13.03.2010, Blaðsíða 76
40 13. mars 2010 LAUGARDAGUR
menning@frettabladid.is
Salurinn kl. 17
Lög unga fólksins kallar Kristján
Karl Bragason píanóleikari efnis-
skrá sína sem hann flytur í Salnum í
dag. Verk eftir Beethoven, Jón Leifs,
Prokofiev og Chopin munu hljóma
þar. Kristján hóf píanónám hjá Lydiu
Koloszowska í Tónlistarskólanum á
Dalvík en hefur síðan stundað nám
í Reykjavík, Frakklandi, Þýskalandi
og víðar.
> Ekki missa af
Purcell tónleikum sem verða í
Grindavíkurkirkju á morgun kl.
17 og eru liður í Menningarviku
Grindavíkurbæjar. Þar koma
fram Anna Jónsdóttir sópran,
Sophie Schoonjans harpa og
Örnólfur Kristjánsson selló.
Aðgangur er ókeypis, en frjáls
framlög velkomin.
Á síðasta ári voru liðin 350
ár frá fæðingu Henry Purcell.
Af því tilefni er dagskráin sett
saman úr sönglögum hans,
þar sem leitast er við að sýna
fjölbreytni í lagavali, allt frá
sálmum til óperuaría.
Nú stendur yfir á Kjarvalsstöðum viðamikil
sýning sem Aðalsteinn Ingólfsson dró saman af
vatnslitaverkum íslenskra myndlistarmanna frá
upphafi til okkar daga. Samfara sýningarhaldinu
var á dögunum gefin út vönduð bók um
íslenska hefð í vatnslitamálun sem
hann ritstýrir og nú um helgina er efnt
til þinghalds um þessa merkilegu og
vinsælu hefð. Þrjú erindi verða flutt
á málþingi sem helgað er vatnslitasýn-
ingunni og fer fram á morgun kl. 15.
Fyrirlesarar eru Aðalsteinn Ingólfsson,
JBK Ransu og Harpa Björnsdóttir. Að
loknu hverju erindi verður boðið upp á
fyrirspurnir.
Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri
fjallar um abstraktmyndir Skarphéð-
ins Haraldssonar frá öndverðum
sjötta áratugnum, bæði vatnslitamyndir og
gvassmyndir, en þær eru nánast óþekktar. Aðal-
steinn fjallar um og skoðar myndirnar í tengslum
við myndir „þekktari“ listamanna frá sama tíma.
Í erindi sínu mun myndlistarmaðurinn JBK
Ransu leggja út frá staðhæfingunni að ekki séu
allar myndir listaverk. Listgildi mynda er metið út
frá listheimskerfi síns tíma.
Þriðja erindið ber yfirskriftina Skilgreiningin
drepur fegurðina. Þar gengur Harpa
Björnsdóttir myndlistarmaður út frá
þeirri fullyrðingu að skilgreiningin
drepi fegurðina og eyði upplifuninni.
Blæbrigði litarins í vatni
MYNDLIST Aðalsteinn Ingólfsson list-
fræðingur kynnir áður óþekktar myndir
eftir Skarphéðin Haraldsson á þingi
um vatnsliti á morgun á Kjarvalsstöð-
um.
Á fimmtudag var opnuð
sýning í nýjum húsakynn-
um Nýlistasafnsins að
Skúlagötu 28 á úrvali verka
úr safninu og mun hún
standa til 2. maí. Safneign
Nýlistasafnsins á upphaf
sitt í rúmlega sjötíu hlutum
sem tengdust SÚM 1965-
1972.
Nýlistasafnið er sjálfseignarstofn-
un, stofnað af hópi listamanna árið
1978, með það að markmiði að
safna samtímamyndlist og vera
vettvangur fyrir sýningar og list-
viðburði. Var stofnun þess til að
tryggja varðveislu samtímalistar
sem bæði stóru söfnin í Reykjavík,
Listasafn Reykjavíkur og Lista-
safn Íslands, höfðu þá ekki sinnt.
Í upphafi skyldu félagsmenn
gefa tvö verk og síðan eitt á ári
en ákvæðinu var síðar breytt í
eitt verk á fimm ára fresti vegna
geymsluvanda. Lát varð á söfnun
verka til safnsins sem lengi átti við
geymsluskort að stríða. Þegar ný
safnstjórn kom til starfa var ráðist
í að skrá safnið. Safneign Nýlista-
safnsins telur í dag um 2.000 verk,
um þriðjungi fleiri verk en skráð
voru í byrjun árs 2008 þegar stjórn
safnsins hóf það viðamikla verk-
efni að fullskrá safneignina og
heimildasafn safnsins.
Ný stjórn kom upp nýju safnrými
á Skúlagötu 28 fyrir margháttaða
starfsemi safnsins, sem er í senn
söfnunar-, rannsóknar- og sýninga-
rými, og lifandi vettvangur.
Verkin á sýningunni eru eftir
íslenska og erlenda listamenn og
eru allt gjafir listamanna til safns-
ins, þótt aðdragandi þess að safn-
inu áskotnist þau sé mismunandi.
Safneigninni tilheyrir mikill
fjöldi verka sem tíminn hefur leitt
í ljós að eru afar merkileg verk
eftir helstu listamenn landsins
og erlenda listamenn, sem sumir
hverjir eru meðal þekktari lista-
manna 20. aldarinnar.
pbb@frettabladid.is
Úrval verka í Nýlistasafni
MYNDLIST Eitt verka á sýningunni:
fræg mynd eftir Sigurð Guð-
mundsson sem kallaðist á við aðra
frægari mynd af Frank Zappa.
„Á þessari sýningu er verið að
vinna með hugarheim barna,
ímyndunarafl og þroska,“ segir
Tinna Gunnarsdóttir, vöruhönnuð-
ur og sýningarstjóri sýningarinn-
ar Í barnastærð sem opnuð verður
í Hafnarborg í dag. Á henni gefur
að líta leikföng og húsgögn sem
sérstaklega eru hönnuð fyrir börn
og sækja innblástur í leiki þeirra
og hugmyndaheim. Sýningin er þó
ekki bara hugsuð fyrir fullorðna
heldur gefst börnum tækifæri á
að leika sér, prófa kassabíla sem
hafa verið smíðaðir fyrir tilefnið
og byggja sér hús úr teppum og
stólum svo dæmi séu tekin.
„Hægt verður að dansa í einu
herbergja safnsins, í sérstökum
dansskóm sem eru þannig úr garði
gerðir að ofan á þeim eru fastir
barnaskór, þannig geta krakkar
dansað ofan á ristinni á pabba eða
mömmu. Svo verður listasmiðja
starfrækt fyrir börnin,“ segir
Tinna.
Í aðalsal safnsins verður hönn-
un fyrir börn til sýnis, húsgögn
og munir íslenskir sem erlendir.
Og þó að þann hluta sýningarinn-
ar megi bara skoða, ekki snerta,
þá er gripunum stillt upp í augn-
hæð barna og þeim þannig gert
auðvelt að njóta sýningarinnar.
Megináhersla er á íslenska hönn-
un en mikill hluti sýningargripa er
húsgögn og leikföng sem hönnuðir,
arkitektar og listamenn hafa unnið
fyrir sín eigin börn og ekki hafa
farið í framleiðslu.
Viðamikil dagskrá verður í boði
fyrir gesti safnsins á öllum aldri
en einnig er boðið upp á fræðslu
fyrir skólahópa sem bæði geta
tekið þátt í leiðsögnum og list-
smiðjum. Nánari upplýsingar er að
finna á heimasíðu safnsins, www.
hafnarborg.is. - sbt
Í augnhæð barna
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
ÍSLENSK HÖNNUN Traktor Manfreðs Vilhjálmssonar er meðal þeirra gripa sem eru til
sýnis á sýningunni, Hann var upphaflega gerður fyrir son arkitektsins en var svo fram-
leiddur í 80 eintökum í tilefni áttræðisafmælis Manfreðs árið 2008.
M
YN
D
N
ÝLISTA
SA
FN
IÐ
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki