Fréttablaðið - 16.09.2010, Qupperneq 52
28 16. september 2010 FIMMTUDAGUR
Myndlist ★★★★
Með viljann að vopni – sýning
á verkum 27 íslenskra mynd-
listarkvenna
Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir
Sýningarstjóri: Hrafnhildur
Schram
Listfræðingurinn og sýningarstjór-
inn Hrafnhildur Schram hefur verið
umsvifamikil á sýningarstjórasvið-
inu undanfarin ár. Sýning henn-
ar Huldukonur í Þjóðminjasafn-
inu árið 2005 og samnefnd bók
vöktu verðskuldaða athygli. Þar
dró Hrafnhildur upp mynd af upp-
hafi íslenskra kvenna í myndlist, af
menntun þeirra, aðstæðum og auð-
vitað list þeirra. Nú er það áratug-
urinn 1970-80 sem er viðfangsefnið,
áratugur sem markar annað upphaf
kvenna í íslenskri myndlist.
Á þessum tíma náði áratuga
gömul kvennabarátta nýjum
hæðum. Mikil vitundarvakning
átti sér stað og konur einhentu
sér í að endurskilgreina heiminn
út frá eigin sjónarhóli. Viðfangs-
efni eins og líkaminn, heimilið,
náttúran og samfélagið voru áleit-
in og það var brýnt að koma kven-
legum sjónarmiðum á framfæri.
Þetta endurspeglast á sýningunni í
fjölda mynda af konum og daglegu
umhverfi þeirra, heimilinu, barátt-
unni, bæði stétta- og kvennabaráttu
og viðhorfi til náttúrunnar.
Sýningin er lágstemmd fyrir
augað, sjónrænir miðlar hafa tekið
miklum stakkaskiptum síðan þetta
var. Hér eru allmörg veggteppi,
grafík, málverk, örfáar ljósmynd-
ir og plaköt. Engar kvikmyndir,
eru kannski ekki til? Skúlptúrinn
er ekki með sem vekur upp spurn-
ingar. Hrafnhildur segir í viðtali að
höggmyndir ættu skilið sérsýningu,
sem er án efa rétt. Sýningin verður
þó dálítið flatari fyrir vikið. Rúrí
stendur upp úr hvað þetta varðar,
tillaga hennar að nýjum þjóðbún-
ingi er klassík að ég tali nú ekki
um eyðileggingu gyllta Bensins
með öxi. Ljósmyndir af Bens-gjörn-
ingnum eru eina verkið sem er utan
við salinn og það er miður því það
hefði hleypt meira fútti í stemning-
una inni í salnum að hafa það inni.
Endurgerð á þessum gjörningi er
við hæfi á minnst þriggja ára fresti
í íslensku samfélagi.
Talandi um fútt þá bjóst ég við
meiru af slíku en það var kannski
bara ekki til staðar. Íslenskar lista-
konur frömdu ekki gjörninga á borð
við verk t.d. Marinu Abramovich
sem sat nakin í listasal á Ítalíu árið
1974 með 72 hluti í kringum sig
þar á meðal hnífa og byssu og bauð
áhorfendum að gera það við líkama
hennar sem þeir vildu.
Hér er nálgunin af allt öðrum
toga. Það sem situr í manni eftir að
skoða er staða listarinnar í samfé-
laginu á þessum tíma. Það var sjálf-
sagt að vefa skoðun sína í veggteppi
og líta á það sem öflugt innlegg í
baráttuna. En í dag? Já það er ein-
mitt sú spurning sem vaknar. Um
leið og sýningin birtir mikilvægi
þess að skoða listasöguna okkar
sem fæstir þekkja, vekur hún ekki
síst spurningar um stöðu kvenna og
listakvenna í samtímanum.
Ragna Sigurðardóttir
Niðurstaða: Sýning sem kveikir
margar tímabærar spurningar um
stöðu kvenna, kjörinn vettvangur til
umræðu. Trú listakvennanna á kraft
listarinnar sem öflugt tæki í samfé-
lagsbaráttunni stendur upp úr.
Hljóðlátt innlegg í baráttuna
GIUSEPPE VERDI
ÓLAFUR KJARTAN SIGURÐARSON
ÞÓRA EINARSDÓTTIR · JÓHANN FRIÐGEIR VALDIMARSSON
JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON · SESSELJA KRISTJÁNSDÓTTIR
BERGÞÓR PÁLSSON · KÓR OG HLJÓMSVEIT ÍSLENSKU ÓPERUNNAR
LÝSING: PÁLL RAGNARSSON · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR
LEIKMYND: ÞÓRUNN SIGRÍÐUR ÞORGRÍMSDÓTTIR
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: STEFÁN BALDURSSON
RIGOLETTO
Frumsýning laugard. 9. október kl. 20 - UPPSELT
Fimmtud. 14. október kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Föstud. 29. október kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sunnud. 31. október kl. 20
Laugard. 6. nóvember kl. 20 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
Sunnud. 7. nóvember kl. 20
WWW.OPERA.IS SÍMI MIÐASÖLU 511 4200
1
3
5
7
9
2
4
6
8
10
Borða, biðja, elska - kilja
Elizabeth Gilbert
Barnið í ferðatöskunni - kilja
Lene Kaaberbol/Agnete Frills
Eyjafjallajökull
Ari Trausti og Ragnar Th.
Spói - Ólafur Jóhann Sigurðs-
son/Jón Baldur Hlíðberg
Vitavörðurinn - kilja
Camilla Läckberg
365 hugmyndir til að
teikna og mála
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í EYMUNDSSON UM LAND ALLT
08.09.10 - 14.09.10
Ranghugmyndin um guð
Richard Dawkins
Ástandsbarnið - kilja
Camilla Läckberg
Þegar kóngur kom - kilja
Helgi Ingólfsson
Íslandsklukkan - kilja
Halldór Laxness