Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

Žórshamar

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



Žórshamar

						ÞÖRSHAMAR

lega verið skárra Þorsteins

vegna, að nafn hans og persóna

væri, sem minst áberandi. Til

þess liggja ýmsar orsakir. Þetta

hefir og heili unglinganna,

Gunnar hjá V. B. K. sjeð, og

þess vegna látið ónotað nafn

Þorsteins á barnalistanum.

Aumingja Þorsteinn Marteins-

son, varst þú of mikið fífl til að

hægt væri að nota þig?

J. J.

Bæjarmál

Rey k:j avíkup.

Þjóðernissinnar vilja endur-

r'eisn á sviðum atvinnumála í

Reykjavík. Þeir vita, að at-

vinnuleysið, sem nú er að

drepa kjark og hug fjölda

manna i bænum, er aðeins

skipulaginu að kenna, og þeir

vilja koma skipulagning á. At-

vinnuskrifstofa "ér nauðsynleg

og sjálfsögð, þar sem með

henni' yrði kleyft að skifta

þeírri atvinnu, sem fyrír hendi

er á hverjum tíma heppilega

niður. Sanngirni verður að

ríkja og skipa öndvegi i at-

vinnumálum bæjanna, í stað

klikuskapar og, frændsemi,

sem ríkir. Atvinnulausir fjöl-

skyldumenn verða fyrst að fá

atvinnu. Þeir hafa fyrir þung-

um f jölskyldum að sjá, og bar-

átta þeirra við atvinnuleysi er

þess vegna harðari og alvar-

legri, heldur en einhleypra

manna, sem hafa líka við alt

of bág kjör að búa. Það á ekki

lengur að spyrja atvinnulaus-

an mann, hvort hann sje

frændi eða vinur þessa eða

hins, heldur um heimilishagi

hans og ástæður. Það er skil-

yrðislaus krafa Þjóðernissinna.

Ráðhús Reykjavíkur verður

að reisa. Það mál hefír alt of

lengi dregist, bænum til stór

skaða og vanvirðu. Sjúkrahús

á Rvíkurbær ekki til, en aftur

á móti geta einstakir læknar

reist myndarleg nýtískusjúkra-

skýli. Geta menn af því sjeð þá

fásinnu, að ekkert skuli að-

hafst af bæjarins hálfu, þegar

þess er gætt, að öll sjúkrahús-

vis't hjer í bænum er afardýr

og kostnaðarsöm.

Hefja verður húsabyggingu,

þár sem fátækara fólkið getur

fengið holt en ódýrt húsnæði,

í stað þeirra rándýru kjallara-

ibúða, sem svo margir búa nú i.

Það er ekki aðeins nauðsyn-

legt, að húsaleiga lækki hjá

fólkinu, sem hefir svo litla pen-

inga, að það rjett getur dregið

framið lífið, heldur er það skil-

yrðislaus krafa allra þeírra,

sem   bera   velferð   æskunnar

Kjósið lista Þjóðernissinna

C-listann.

fyrir brjósti, að æskulýður

bæjarins alist upp í góðum og

björtum húsakynnum, í stað

dimmra og þröngra.

Verkefnin eru óteljandi. Þau

biða úrlausnar duglegra og

framsýnna manna, — og Þjóð-

ernissinnar munu leysa þau.

En hvernig ætla þeir að fara

að þessu. Það er spurningin.

Ekki er nóg að benda á galla

og finna að það verður að

benda á leiðir til viðreisnar,

— og það skal gert.

Framh.

Gtsli Sigurbjörnsson.

„Foringjar".

Það ástand, sem nú ríkir i

atvinnumálum þjóðarinnar eru

allir óánægðir með, aðrir en

þeir, sem græða á óstandinu.

Og hverju eru það, sem á ein-

hvern hátt hafa ágóða af fyrir-

komulaginu? Þeir, sem beiii-

línis lifa á atvinnuleysinu og

fleyta rjómann ofan af neyð-

arkjörum þjóðarinnar, eru

verkalýðsforingjarnir          svo

nefndu. Ríkti hjer engin neyð

nje skortur, og allir hefðu nóg

að bíta og brenna, væri heldur

ekki nein óánægja nje jarðveg-

ur fyrir kjaftaskúmana, sem

kalla sjálfa sig foringja hinna

vinnandi stjetta. Á kostnað ör-

birgðar og skorts atvinnulítilla

og atvinnulausra manna, hafa

„foringjarnir" náð sjálfum sjer

upp i tignarstöður þjóðfjelags-

ins. Það eru „foringjarnir",

sem fyrst og fremst græða á

ástandinu, eins og það er mi,

og þar af leiðandi reyna þeir

af fremsta megni að halda því

við, og þá um leið sjálfum sjer

í tignarsessunum vellaunuðu.

Með lygum og blekkingum telja

þeir vinnulausum lýð trú um,

að alt muni batnandi fara, nái

þeir yfirráðunum í landinu.

Þeim hefir tekist að sölsa

undir sig nokkur bæjarfjelög,

— og hvernig er ástandið þar?

Á Isafirði hafa þeir ráðið ár-

um saman, en atvinnuleysi er

þar hlutfallslega langmest á

landinu. Seyðisfjörð og Norð-

fjörð þarf ekki að minnast á;

sama ástandið og var, ef ekki

heldur verra, en áður en þeir

tóku þar við stjórn. I Hafnar-

firði er atvinnuleysið gífurlegt

og engu minna hlutf allslega en

hjer í Reykjavík-

Af hverju eru þessir verka-

lýðsforingjar þá sífelt að

guma? Þar sem þeir hafa haft

ráðin í höndum sjer, hefir öllu

hrakað frekar en batnað, — að

ekki sje minst á „sældarkjör-

in" í loforðum þeirra, þar sem

allir eiga að fá nóg af hverju

sem er, fyrir sama og ekkert.

Hve lengi ætlar íslenskur

verkalýður að láta teyma síg

Jeg undirritaður hefi orðið þess var, að nafn mitt

hefir verið sett á lista til bæjarstjórnarkosninga hjer í

bænum af nokkurum mönnum, sem kalla sig Unga

Þjoðernissinna.

í tilefni af þessu lýsi jeg hjermeð yfir því, að nafn

mitt hefir verið sett á nef ndan lista að mjer fornspurð-

um og í heimildarleysi, og mun jeg ekki styðja lista

þennan við kosningarnar, nje óska þess að aðrir geri

það.

Reykjavík,  9. janúar 1934.

Páll  Sigfússon,

stýrimaður.

Ásvallagötu 10 A.

Þetta er fyrsta yfirlýsingin,

sem fengin er um nafnastuld

Gisla Bjarnasonar & Go., og

mun von á fleirum. Leiðinlegt

er til þess að vita, að óvand-

aðir  menn   einskis  svífist,  til

að geta flaggað með nöfnum

heiðvirðra borgara á lista sín-

um. Enginn verður þó forviða

á Gisla Bjarnasyni, sem hann

þekkja.

eins og sauðfje til slátrunar,

af þessum hávaða-kjaftanögl-

um, er kalla sig foringja?

Islenskur verkalýður! Loforð

og svik er reynsla yðar af „for-

ingjunum".

Hrindið þeim á burt, nú í

kosningunum, þegar þeir vilja

fá alkvæði yðar til að geta lif-

að enn rólegra lifi á kostnað

yðar, næstu 4 ár.

Fylkið yður undir merki

Þj óðernishreyf ingarinnar og

stuðlið að þvi, að koma á rjett-

læti, frelsi og friði i bæjarfje-

lagi voru, með því að koma

dr. Halldóri Hansen inn i bæj-

arstjórn Reykjavikur.

Kjósið C-listann.

Fram til tóttu.

Undir merki Þórs, munum

vjer Þjóðernissinnar hefja ó-

trauða baráltu gegn afturhaldi

i hvers konar mynd; gegn

rauðu flokkunum; gegn ófær-

um mönnum með slæman

málstað. Vjer munum berjast

hlífðarlausri baráttu gegn öllu

þvi og öllum þeim, er standa

í vegi fyrir alhliða viðreisn at-

vinnuveganna; sama hvað það

er, eða hverju nafni þeir nefn-

ast. Hvort þeir eru forstjórar

>eða „foringjar". Hvort þeir

fylla flokk auðvalds eða öreiga.

Hvert sem litið er, blasir við

eymdog volæði, eða þá maga-

mikli auðvaldsseggir. Hvort-

tveggja verður afmáð eftir

fárra ára stjórn þjóðernis-

sinna. Orsakir eymdar og at-

vinnuleysis, auðsöfnun einstak-

Iinganna á kostnað þjóðf jelags-

heildarinnai*, og viðhaldendur

eymdar og atvinnuleysis, Marx-

istarnir, verða að hverfa og ríf-

ast upp frá rótum, til þess að

viðreisn og endurlífgun heil-

brigðs atvinnulífs fái notið sín

að fullu. í framtíðarriki ís-

Jenskra þjóðernissinna verður

hvergí pláss fyrir duglausa for-

stjóra, er hingað til hafa ver-

ið blóðsugur atvinnufyrirtækj-

aiina', eða kjöftuga froðu-

snakka, er telja sig foringja

islenskra verkamanna, en haf a

aldrei verið verkalýðnum til

nokkurs gagns, heldur tekist

að sá fræjum haturs og úlfúð-

ar i hjörtu þeirra lítilsigldari

gegn öllu og öllum. Það verður

aldrei ráðið fram úr aðal-

vandamáli þjóðarinnar, at-

vinnuleysinu, á þann hátt, að

annars vegar lifi forstjórar

deyjandi f3rrirtækja, að sjálfs

sín sögn, í óhófi, en hins veg-

ar sjeu vinnulitlir og vinnu-

lausir verkamenn og -konur,

sem svelta og búa við skort í

öllu tilliti; það verður að grípa

i taumana með harðri hendi,

ef þjóðfjelag vort á eigi að

hrynja til grunna.

Hvernig skal þá aflra þvi,

sem hverjum skynbærum

manni er skiljanlegt, að hjer

brjótist út: Uppreisn sveltandi

verkamanna, undir leiðsögn

rússnesku leigutólanna? Sú

uppreisn er óhjákvæmileg, með

sama áframhaldi, sömu sví-

virðunni, er hjer hefir i*íkt í

bæja- og landsmálum.

Svarið er aðeins þetta: Þjóð-

in á að fá vinnu.

Hver einasti verkfær maður

i lándinu þarf að fa tækifæri

til að vinna ofan af fyrir sjer

og sínum. Þá mun brátt lægja

undirróðursöldur kommúnista-

skrílsins, og friður og rjettlæti

ráða hjer rikjum á ný. En á

meðan, Marxistarnir fá að

leika lausum hala, og enginn

hemill hafður á gróðrafíkn og

braski auðvaldsins, er sýnt, af

reynslu undanfarinna ára, að

alt fer hröðum skrefum niður

á við, til að enda í uppreisnar-

brjálæði „öreigánna" og djöf-

ulræði braskaranna.

Verkamaður.

Ábyrgðarmaður:  Sveinn Jónsson.

Fjelagsprentsmiðjan,

					
Fela smįmyndir
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4