Póst- og símatíðindi - 01.12.1977, Blaðsíða 12

Póst- og símatíðindi - 01.12.1977, Blaðsíða 12
12 1977-03-30 Umburðarbréf nr. 7. — Umdæmisstöðvarnar — Póstnúmeraskrá hefur verið send öllum póststöðvum og skal henni dreift til allra heimila, stofnana og fyrirtækja. Tilkynnið eftir þörfum. 1977-03-31 Umburðarbréf nr. 8. — Umdæmisstöðvarnar — Eftirtaldar símstöðvar verða lagðar niður frá og með 1. 4. 1977: Símstöðin Ásgarður, Grimsneshreppi, Árnessýslu. Frá sama tíma verða sím- notendur frá Ásgarði tengdir símstöðinni á Selfossi. Bólstaðarhlið í Bólstaðarhlíðarhreppi og Svinavatn í Svínavatnshreppi, Austur- Húnavatnssýslu. Handvirkir notendasímar verða tengdir til símstöðvarinnar á Blöndu- ósi en 12 notendasímar verða tengdir við sjálfvirku símstöðina í Bólstaðarhlíð. Símstöðin Tjarnir í Fellshreppi, Skagafirði. Handvirkir notendur verða tengdir til símstöðvarinnar á Hofsósi. Tilkynnið eftir þörfum. 1977-03-30 Umburðarbréf nr. 9. — Umdæmisstöðvarnar — Póst- og símamálastjórnin hefur gefið út bókina íslensk lrímerki í hundrað ár — Saga íslenska frímerkisins. Ákveðið hefur verið að hún verði til sölu á póst- og símstöðvum og geta þær pantað hana hjá Birgðavörslu pósts og síma. Verð bókar- innar er kr. 30 000.00, með söluskatti. Tilkynnið eftir þörfum. 1977-04-18 Umburðarbréf nr. 10. — Umdæmisstöðvarnar — Nýtt gengi fyrir útborganir úr norskum póstsparibankabókum hefur verið ákveðið frá 18. apríl 1977, sem hér segir: 100 nkr. = 3 400 íkr. Tilkynnið eftir þörfum. 1977-04-27 Umburðarbréf nr. 11. — Umdæmisstöðvarnar — Eftirtaldar símstöðvar verða lagðar niður frá og með 1977-05-01. Símstöðin Kiðjaberg, Grímsneshreppi, Árnessýslu, og símstöðin Minni-Borg, Grímsneshreppi, Árnessýslu. Frá sama tíma verða símnotendur frá þessum stöðvum tengdir sím- stöðinni á Selfossi. Tilkynnið eftir þörfum.

x

Póst- og símatíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Póst- og símatíðindi
https://timarit.is/publication/667

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.