MOEGUNN 3 segja, að hlið annais heims hafi opnast með dásamlegum hætti fyrir mönnunum á tveim síðustu mannsöldrunum. Bönd hinna og annara villukenninga eru að hrökkva sund- ur. Mennirnir eru miljónum saman að verða frjálsir í anda ekkert síður hér á landi en í öðrum löndum. Hugsjónir eru að rætast. Fyrir því hygg eg, að tíminn sé kominn til þess að bjóða mönnum þetta tímarit. Okkur, sem riðnir erum við útgáfu þeas, langar til, að það verði ofurlítill gluggi, er eitthvað af morgungeisl- um góðra hugsjóna geti skinið gegnum, og með þeim hætti komist inn í sem flest heimili þessa lands. flnnafi líf. Erindi flutt í 5álarrannsótsnafélagi Islands, 20. marz 1919. !nokkuí stytt.) I. Sálarrannsóknirnar hafa þegar fært fjölda manna full- nægar sannanir á framhaldslífi persónuvitundarinnar og veitt öðrum grundvöll undir örugga trúarvissu um það. Þetta er ærið starf, og ef svo er, sem eg hygg og margir aðrir, að framhaldslifið sé í raun og veru sannað hverj- um þeim, sem vill sjá og heyra, þá má telja það út af fyrir sig ákaflega mikilvægt svo mikilvægt, að eg veit ekki annan hlut mikilvægari. Reyndar hefir mannkynið, sem betur fer, aldrei farið alveg varhluta af eilífðarviss- unni eða að minsta kosti ekki af eilífðarvoninni, en mikill munur er þó á ',þvi, að sitja við hálfbrunna kyndla horfinna tíma, eða hinu, að sjá morgunroðann koma ofan f jallið, eins og engil í gullnum herklæðum, svo sem skáldið (H. G. Wells) kemst að orði. Og mestan l*