6 MORGUNN ast gegnum líkama, er hún skapar og stjórnar og erum við þá komnir að sálarlíkama (»astral«- líkama) spiritista og guðspekinga. Mikla áherzlu leggur hann og á það, að við erum nú þegar »andar«, lifum i tveimur heimum, þótt við vitum venjulega aðeins af öðrum, hinura sýnilega efnisheimi og að dauðinn er í raun og veru ekki annað, en færsla á vitundarþröskuldinum, sem eyðir ekki sjálfs- vitund vorri, heldur víkkar hana og fullkomnar. Og þá hæfileika, sem við þurfum að nota í öðrum heimi, höfum við þegar hér og nú, a. m. k. sem fræ eða möguleika, á sinn máta eins og fóstrið í móðurlífi hefir hendur og fætur, sem það þarf alls ekki að nota, á meðan það er þar, en eru skapaðir fyrir alt annað umhverfi (þ. e. okkar sýnilega heim), sem barnið kemst inn i við fæðinguna. Dauðinn er fæðing inn í annað umhverfi, þar sem okkur mun gefast færi á að nota dularhæfileika okkar og það umhverfi er jafn-raunveruleg't og þetta, og tilveran þar getur ekki verið eingöngu andleg(í okkar skilningi), heldur hlýtur og að ná yfir eitthvað, sem samsvarar efninu hjá okkur eitthvað, sem andinn getur verkað á, Um svefngönguástandið farast honum þannig orð í »Menneskets fraade« (bls. 7980.): »Svefngenglarnir líkja ajálflr þe9su stundarástandi sínu við ástandið eftir dauðaun, t. d. Auguste K.1) og sjá- andinn frá Prevorst2). Engir ðrðugleikar eru á því, að hugsa sér svefngönguástandið sem stöðugt ástand. Til þess eru nóg dæmi, að það hafi staðið yfir vikum og mán- uðum saman, og hefir þá svefngengillinn haldið sinu venju- lega útliti og framkvæmt sín daglegu störf. Sjálfir taka þeir ástand þetta fram yfir vökuna; þeir telja það raun- verulegra og tala með lítilsvirðingu um sína jarðnesku persónu. Muratori8) segir frá stúlku, sem virtist liggja ') Mitteilungen aus dem Schlafleben der Somnambulen Auguste K. 2) Kerner : Die Seherin von Prevorst. s) Muratori: (jber die Einbildungskraft, II, c. 9.