8, MORGUNN láti þessarra efnislegu sviða ekki getið1). Eg hygg ekki,. að nein óleysanleg mótsögn þurfi að vera þarna á milli, en skoðun du Prels virðist mér fyrst um sinn nær skiln- ingi vorum og þekkingu (eða þekkingarleysi), svo að sannanabyrðin hljóti að hvíla á hinum aðiljanum.2) III. Eg get ekki gert annað í kvöld, en að minnast á örfá atriði i þessu máli, og mun eg þá einkum halda mér við þá anda, sem áreiðanlegastir hafa reynst og bezt hafa sannað sig. Flestir munu kannast við frú Piper, ameríska miðil- inn fræga. Hjá tienni komu fram margir andar, sem sönnuðu sig vel, en óhætt mun þó að segja, að enginn hafi gert það betur, en maður sá, sem nefndur er oftast í ritum George Pelham, en réttu nafni hét Pellew. Hann var af mikilhæfri ætt i Bandaríkjunum, kominn af Benja- min Franklin. Hann las lögfræði, en gaf sig að loknu námi við bókmentum og heimspeki og ritaði bækur um þau efni. Hann var efnaður vel og heilsuhraustur. Hann bjó lengi i Boston, en 3 seinustu árin í New-York. í febr 1892 datt hann af hestbaki og beið bana af. Hann var mjög efandi um þá hluti, sem eru viðfangs- efni sálarrannsóknafélaga, en var þó félagi í Ameríska Sálarrannsóknafélaginu (Am. S. P. B,.), og dr. Hodgson þekti hann vel. Tveim árum fyrir dauða Pelhams höfðu þeir talaBt við um annað líf, og Pelham haldið því fram, að það væri óhugsanlegt, en Hodgson maldaði í móinn. Að lokum félst P. á, að það væri a. m. k. hugsanlegt, og endaði eamræðuna msð þeaeum orðum: »Ef eg dey l) J. Arthur Hill: Spiritualism, its History, Phenomena and Doctrine, ble. 228243. Sbr. PBjchical Investigations, eftir sama höf., bls. 254268. ') Sjá enn fremnr: JameB H. Hyslop: Psychical Research and Snrvival, bls. 151164.