MORGUNN 19 atriðið er hitt, að líðan vor hinum megin fer samkvæmt föstum lögum eftir breytni vorri og hugarfari hér. Og sálarrannsóknirnar og spiritisminn kenna okkur æ betur, að -»sál allrar þroskunar er þroskun sálarinnari. Jákob Jóh. Smári. Fyrirheitið um anda sannteikans. fiuítasunnuræila 1919. EJtir prófessor fiarald níelsson. Ef þér elskið mig, þá munuð þér halda boðorð mín. Og eg mun biðja föðurinn, og haun mun gefa yður annan huggara, til þess að hann Bé hjá yður eilíflega, anda sannleikans, hann, em heimurinn getur ekki tekið á móti, af því að hann sér hann ekki og þekkir hann ekki heldur (Jóh. 14, 1517). Hvítasunnuhátíðin hefir frá upphafi verið vorhátíð. Oss minnir hún sérstaklega á hina fyrstu vordaga kristi- legrar kirkju, á heilaga tíma guðmóðs og hrifningar, þá er lindir nýs, auðugs og öflugs trúarlífs brutust fram lindir, sem smátt og smátt urðu að lækjum og fljótum og yngdu upp alt það land, er þær runnu um. Þá var sem væri að rætast það, er Ezekiel spámaður segir frá í einni af sýnum sínum um musterið i Jerúsalem (Ezek. 47, 112). Hctnn sá vatn spretta upp undan þröskuldi musteris- inB. Er það hafði runnið nokkurn spotta, var það orðið að læk, sem tók honum í hné. Og síðan óx lækurinn æ meir, unz hann varð að óvæðu fljóti. En alstaðar þar sem vatnið rann, uxu græn tré á fljótsbökkunum beggja vegna. Þegar það hafði runnið um sléttlendið, féll það i Dauðahafið. En þá varð vatnið í Saltasjó beilnæmt, svo 2*