26 MORGUNN halda boðorö hans. Já, af því að sú elska er ekki ósann- ur og framkvæmdarlaus kærleikur. Þú þekkir það af öðrum sviðum lífsins, að sönn elska er ekki óstarfandi, heldur verður að hafast eitthvað að fyrir þann eða það, sem hún óskar að lúta og þjóna. Ef þú elskar drottin Krist, þá reynir þú eftir mætti að gera vilja hans og laga þig eftir honum. Þá gerir þú þér far um að halda fyrir- mæli hans um trú og hlýðni, um sjálfsafneitun og eftir- breytni eftir honum. Og gleymið nú ekki, hvert fyrirheit Jesús gaf þeim, sem gerðu þetta, sem elskuðu hann svo, að þeir vildu halda boðorð hans. »Og eg mun biðja föðurinn, og hann muu gefa yður annan huggara, til þess að hann sé hjá yður eilífiega, anda sannleikans«. Andi sannleikans, það er gjöf- in, sem þeir hljóta, er elska Krist og vilja halda boðorð hans. Það var sú gjöfin, sem postularnir öðluðust hinn fyrsta hvíta- sunnudag. Andi sannleikans, það var huggarinn, sem heitið var að senda þeim. EkKÍ rétt í bili svona stund- arkorn þennan fyrsta hvítasunnudag nei, »til þess að hann sé hjá yður eilíflega«, sé hjá þér daglega, hvert ein- asta sinn, er þú átt að velja um það, sem vandasamast er í trú og breytni, sé hjá þér æfi þína á enda hér í tím- anum, og inn á ný svið tilverunnar, þar sem enginn tími er til lengur. Líka þar verður þú að velja og hafna. Hefir þú gert þér þetta ljóst, hvort þú þráir þessa miklu gjöf, þennan huggara á sumum mestu úrslitastund- um lífsins: anda sannleikans? Ef þú átt hann, þá spyr þú ekki fyrst um, er ný kenning mætir þér,eins og sú, sem vér erum að tala um, hvort hún komi heim við trú- arjátningar og kenningar fyrri tíðar manna. Það er hættu- legt. Það gerðu Farísear og fræðimenn forðum í Jerú- salem og líflétu Krist sem þann, er leiddi lýðinn í villu. Ut í þá ófæru getur fastheldnin við hið gamla leitt oss. Andi sannleikans kennir oss að leggja alt annan mæli- kvarða á hlutina. Hann segir, nei býður oss með heilagri alvöru: Gakk þú úr skugga um, hvort það er satt eða