MORGUNN 27 ekki. Leyfðu þér aldrei að dæma um neitt að órannsök- uðu máli. Varðveittu hug þinn og tungu frá slíku athæfi. Alt, sem er satt, er frá guði. Hver sem er á móti ein- hverju, sem er satt, hann berst á móti guði. Og því meira vald, sem andi sannleikans fær yfir oss, þvi betur skilst oss, hve mikla synd vér drýgjum með því að veita því mótspyrnu, sem er satt og rétt, einkum þegar það snertir þau málin, sem mestu varða líf mannanna. Hvernig þú hagar þér gegn sannleikanum, kann að hafa meiri og lang- vinnari afleiðingar en þig nú grunar. Afstaðan til anda sannleikans hér í heimi getur haft mikil áhrif á hagi þína og líðun, er inn í nýjan heim kemur. Þú manst, að Krist- ur talaði um syndina gegn heilögum anda. Andi sann- leikans er hinn heilagi andi. Öll synd gegn sannleikan- um er því að einhverju leyti synd gegn heilögum anda. Og hún verður ekki fyrirgefin, sagði Jesús sjálfur. Hana verður hver og einn að afplána með einhvers konar þjan- ingum eða þrautum, ef ekki hérna megin, þá í öðrum heimi. Þetta þurfum vér öll að hugfesta oss. Þessu ætti engin kirkjudeild né nokkur boðberi kristindómsins að gleyma. Jesús hefir ekki látið skrifa né sjálfur skrifað neinar reglur eða leiðbeiningar um trú og kenning, til þess að þær gætu verið i'astur mælikvarði á öllum öld- um. Nei, segir hann, ef þér elskið mig og haldið mitt mikla kærleiksboðorð, þá á ekki að setja yður ritaðar reglur um, hvernig þér eigið að haga yður að öðru leyti á sérhverri tíð. Tímarnir líða og heimurinn er stöðugri breyting háður, og ritaðar reglur úreltast og ganga úr gildi. En eg mun burja föðurinn, og hann mun gefa yður það, sem helzt og varir við, hvernig sem alt breytist: anda sannleikans. Þarfnast ekki kirkja vor þess, að nýr þytur frá anda sannleikans fari um hana'? Veitir henni af að heyra gný sem af aðdynjandi sterkviðri? Hugsa ekki of margir þjónar hennar um bókstafsfyrirraæli og er ekki um of