52 MOHttUNN kerfið starfaði sitt í hvort sinnið og sitt með hverjum hætti«. Það virðist þá vera mismunandi efni í þessurn heilakerfum eða heilabólum, sem hann kallar oftast. Og fari svo, að þetta »griplusamband« raskist og persónuskifti verði, getur prúðmennið orðið að dóna, góðmennið að fanti, sæmdarkonan að hroðalegasta skassi, sem eys böl- bænum og öllu hinu versta yfir alla þá, sem hún hefir unnað. Og eftir þessu á allur óþokkaskapur að geymast í 'heilabólum og vera alt af til taks, þegar þessar »gripl- ur« bila og samband myndast í sambaudsslitinu! Á. B. getur þe8S, að honum og Guðmundi prófessor Finnbogasyni hafi komið saman um að nota orðið »gripl- ur« fyrir gríska orðiðið »Synapsis«. Þetta er undarlegt val, þar sem orðið »griplur« eða »griplar« er gamalt heiti á totulausum fingravetlingum, sem eru oft notaðir við votaband, er gerir menn sárhenta, og ýms önnur úti- verk. Annars er margt í þessum fyrirlestri gripið úr jafn- lausu lofti ^eins og það, sem nefnt hefir verið, þótt hér sé látið staðar numið. Og þó er fyrirlestur þessi ekki nema tíu blóð »Iðunnarc. Þetta er hinn fyrsti fyrirlestur, sem fluttur var i Hinu íslenzka vísindamannafélagi. Sagt er, að Á. B. hafi geng- ist í'yrir því að fá það stofnað. Það má því gera ráð fyrir, að hann muni ekki hafa viljað velja því af verri endan- um, þegar hann bauð félagabræðruca sínum fyrstu vísinda- krásirnar. En þeir mega ekki vera matvandir, ef þeim hefir bragðast vel jafn-illa fsoðinn og ólystugur getgatu- grautur. Þórður Sveimson.