60 MOKGUNN Hann segir, að með málinu hafi verið veitt nýju ljós- magni yfir alheiminn í sinum augum. Hann segist nú skilja atriði i Nýja testamentinu hundruðum saman, sem hann hafi ekki skilið áður. Hann segist nú vita það, sem hann hafi að eins trúaO áður. að mennirnir lifi eftir dauð- ann. Og hann fagnar nú í huganum þeim degi, sem hann hyggur óðum vera að nálgast, er allir muni vita það, að Kristur hafl i raun og veru leitt ódauðleikann í ljós. Hon- ura finst ekki, að þetta hafi verið sér neitt smárði. Full- ur þakklætis og lotningar stehdur hann andspænis þess- ari nýju opinberun. Eg skil ekki, hvernig þetta gæti verið neitt smáræði neinum presti, neinum manni, sem á að flytja fagnaðar- erindi Jeaú Krists, ef honum auðnaðist á annað borð ab fá að reyna þetta. Mér skilst svo, sem öllum prestum, er hafa orðið þessarar gæfu aðnjótandi, hafi fundist hún ómet- anleg. Og eg skil ekki, hvernig nokkurum manni getur ver- ið 'það smáræði. Fæstum okkar er ætlað að boða fagn- aðarerindið nema þá óbeinlínis. En okkur er öllum ætlað að lifa, eftir jarðneskan dauða, því framhaldslífi, sem verið er að boða okkur. Og öllum er okkur sjálfsagt ætlað að keppa eftir einhvers konar samlifi við drottinn okkar og meistara þann sem Wynn prestur hefir feng- ið styrkari trú á [eftir 'rannsóknirnar en hann hafði á undan þeim.