M 0 R G U N N TTlorgunn Tímartí um andíeg mdí. Kemur út í þrem 5-arJca Jieftum á ári, 1. janúar, 1. maí og 1. september. Argangurinn Tcostar 10 hr. Einstöh hefti 4 hr. Áskriftargjald greiðist áður en 2. hefti kemur út, og verður það ekki sent áskrifendum fyr en árgangurinn er borgaður. Þórarinn B. Þorláksson Bankastr. 1J, Reykjavík hefir með höndum aðalútsölu ritsins og alla inn- heimtu. Askrifendur geri svo vil að senda hon- um pantanir sínar, Alt efni, sem ætlað er til birtingar í ritinu, sendist ritstjóra Morguns Einari H. Kvaran Aðalstr. 16, Reykjavík. Menn geri svo vel að afskrifa þau handrit, sem honum kunna að verða send, svo að ekki þurfi að endursenda þau, ef þau verða ekki notuð. Sérstaklega er ritstjóra Morguns mikil þökk á áreiðanlegum frásögnum um dulræn fyrirbrigði, svo sem merkilega drauma, firðsýnir og firðheyrnir, skygni, svipi, óskiljanlegan ókyrleika í húsum, fyrirboða, andlegar lækningar, sannanir frá tilrauna- fundum o. s. frv. Ekki er unt að lofa því að prenta alt þess konar, sem ritstjóranum kynni að berast. En það verður geymt i skjalasafni S. R. F. í. Og það af því, sem hentugt virðist til birtingar, verður prentað i Morgni, eftir því sem rúm leyfir.