50 MORGUNN Merkileg bók. From the Uuconsious to the Conscious, by Gustave Geley Director of the Iniernational Metapsychical Institute, Paris. Translated from the French by Stanley De Br ath, etc. London 1920. (Frá vitundarleysi til vitandar, eftir Gh Gr., forstjóra hinnar al- þjóðlegu sálarrannsóknarstofnunar i París. Þýtt úr frönsku af Stanley De Brath.) Þessi bók er að ýmsu leyti harla merkileg. Á henni má sjá, að aálarrannsóknirnar eru líklegar til að breyta hugmyndum manna á því nær öllum sviðum og varpa nýju Ijósi á ýmsar af fræðikenningum visindanna. Það er aðallega þróunin bæði hjá einstaklingun- um og alheiminum sem höfundurinn tekur til með- ferðar. Skiftist bókin i tvo parta. Ræðir sá fyrri um einstaklinginn og alheiminn, samkvæmt ríkjandi fræði- kenningum í vísindum og heimspeki, og er þar reynt að sýna fram á, að þessar kenningar sé ekki fullnægar til að skýra einstaklingseðlið eða rás þróunarinnar. Síðari parturinn byggir því uæst þar upp, sem sá fyrri hefir rif- ið niður, og setur fram skoðanir höf. á þessum hlutum. Er öll bókin reyndar vel rituð, en þó þykir mér fyrri parturinn skara fram úr að skarpleik hugsunarinnar og rökfestu. Höf. byrjar á því að 8ýna fram á, að hinar viður- kendu orsakir, eftirlögun og náttúmval, sé ekki nægjan- legar til að skýra myndun nýrra tegunda, uppruna eðlis- hvatanna, stökkbreytni, sem skapar nýjar tegundir, né hina snöggu og langvinnu festingu (»crystallisation«) á aðaleinkennum nýrra tegunda og nýrra eðlishvata. Tek- ur hann siðan skordýrin til dæmis og bendir á, að hinar undursamlegu breytingar þeirra sanni, að aðalorsök þró- unarinnar sé hvorki áhrif umhverfiains, né avar lífræns efnis við þeim áhrifum, heldur »aflfæri« (dynamism), orku-