Nokkur atriði úr utanför minni. Erindi, eftir Einar H. Kvaran. II. Eg sagði frá nokkurum atriðum úr utanför minni í S. R. F. í. á síðastliðnu hausti, og það erindi hefir verið prentað í Morgni. Eg er að hugsa um að segja ykkur frá öðrum atriðum, sérstaklega sem snerta dulrnar lækningar. Eg vona, þið lítið ekki svo á, sem eg vilji fylla ykkur með neinni hjátrú. Vafa- laust vefst mikið af hjátrú víða inn í þessar lækningar. En það er staðreynd, sem eg hygg að ekki verði mótmælt, að þær gerast stundum, og meira að segja að mjög mikið gerist af þeim. Eg hefi aldrei getað skilið, að það sé neitt ísjárvert, að kynna sér staðreyndir tilverunnar og tala um þær hvort sem menn geta skýrt þr að fullu eða ekki. Eg get ekki sagt ykkur nú frá öllu, sem eg fékk að vita um þetta efni í ferð- inni, verð að láta mér ngja að drepa á einstök dmi. Eg er að hugsa um að byrja vestur á Kyrrahafsströnd, mjög sunnarlega, eitthvað 150 mílur frá landamærum Mexico, í borginni Los Angeles. I þessum unga, fagra og auðuga bæ, sem er orðinn mesta borgin á Kyrrahafsströndinni, með eitt- hvað á 2. miljón íbúa, eru miklar andlegar hræringar af ýmsu tæi. Þar eru meðal annars aðalstöðvar spíritistanna á vestur- ströndinni, með mörgum söfnuðum og fjölda af miðlum. Nafnkendastur sálarrannsóknamaðurinn og spíritistinn í Los Angeles er víst Dr. Austin. Hann er mælskumaður með afbrigðum og hefir óbifanlega sannfæring um samband við annan heim. Hann hefir bókasölu og bókaforlag, gefur út dul- rænar bækur ýmis konar. Þar á meðal er tímaritið Reason", sem er alveg spíritistiskt og hann er ritstjóri fyrir. Þegar fyrst fara sögur af honum, var hann prestur í kirkjufélagi medódista í Ontario í Canada. Meðan hann var í þeirri stöðu, sannfærðist 8