MORGUNN 119 "vini okkar Jóni Þorbergssyni og konu hans. Fyrst sýndi hann okkur rafvélina, og hvernig hún væri notuð við sjúklingana. Við létum öll veita á okkur straumnum, til þess að finna, hvernig meðferðin á sjúklingunum væri, og auk þess var þar ein kona, sem sagðist hafa verið mikið veik, en vera nú um það bil albata, enda varð á engu séð, að neitt gengi að henni. Að afstaðinni sýningunni á notkun rafmagnsvélarinnar, "var okkur boðið til miðdegisverðar. Eftir dálitla stund, frá því «r staðið var upp frá borðum, átti að vera fundur. Þessa stund tókst mér að nota til þess að eiga ofurlítið ítal við frúna. Hún sagði mér þá meðal annars, hvernig fyrst hefði orðið vart við miðilsgáfu hennar. Hún er Svíi, og það er mað- urinn hennar líka. Fyrir eitthvað 40 árum var hún nýkomin frá Svíþjóð. Þá kom henni til hugar, að láta spá fyrir sér. Einhverjar stallsystur hennar höfðu sagt henni, að fyrir þeim hefði verið spáð af konu, sem þær vísuðu henni á. Svo að hún fór þangað, hitti konuna og bað hana að spá fyrir sér. Konan tók henni í meira lagi fálega. Bg er engin spákona," sagði hún. Samt sagðist hún geta sagt henni nokkuð um hana, ef hana langaði til. Þér verðið miðill" Hvað er það?" sagði nnga, sænska stúlkan. Hún mintist þess ekki, að hafa nokkuru sinni heyrt það orð. Miðill er það, sem eg er," sagði konan. Þetta þótti sænsku stúlkunni í meira lagi vondur spádómur. Hún hafði ekki heyrt talað um atvinnu þessarar konu öðruvísi «n í skopi og með fyrirlitning. Hún var staðráðin í því, að láta slíkt ekki henda sig. Og nú forðaðist hún að koma nokkurs- ¦staðar þar nærri, sem miðlar voru. Svo henti það hana eítt kvöld, að framliðin kona stóð fyrir framan riímið hennar, og sagði lienni, að henni væri ætlað að verða miðili og lijálpa geðveikum mönnum. Til sann- indamerkis skyldi hún hafa það, að fara til mannsins fram- Mðnu konunnar og segja honum frá þessari heimsókn. Hún skyldi taka það fram, að henni (þ. e. framliðnu konunni) væri kunnugt um, að maðurinn hennar gæti ekki fundið einhvern skrautgrip, sem liún hefði átt. Eg nian ekki, liver hluturinn