1'20 M0E6TJNN var. En stúlkan átti að segja, að hluturinn vri í tilteknu horni í tiltekinni kommóðuskúfíu. Stúlkan gerði þetta daginn eftir, og hluturinn fanst þar, sem framliðna konan vísaði á hann. Þá kem eg að fundinum um kvöldið. Það var fjölmennasti trance-fundur, sem eg hefi verið á. Eg geri ráð fyrir, að fund- armenn hafi fráleitt verið færri en 200. Þetta kvöld sóttu óvenjulega margir menn fundinn, af því að eitt blaðið í borg- inni hafði um morguninn skýrt frá bók Dr. "Wicklands á ameríska vísu, með stórum og mörgum fyrirsögnum og venju- legri ónákvæmni. En annars er þeim, sem vilja, heimilt að koma einu sinni í viku, eftir því, sem húsrúm leyfir. Inngangur er engum seldur. Allir fundarmenn voru látnir skrifa nöfn sín, og þess vegna komst eg að raun um, að sessunautur minn öðru- megin var kona eins af frægustu rithöfundum Bandaríkjanna, Uptons Sinclairs. Sjálfur hafði hann ætlað að koma á fund- inn, en ekki getað komið því við, þegar til kom. Fundurinn var í tveim pörtum, gersamlega ólíkum, a& öðru leyti en því, að frúin var í sambandsástandi bæði fyrri og síðari hlutann. I fyrri hlutanum var hún látin leika leik- rit, sem hún hafSi ritaiS ósjálfratt fyrir mörgum arum. ViS skildum eklcí nolckurt orð, en lknirinn útslcýrði fyrír oklcur, hvað væri að gerast. Af uppruna þessa leikrits er það í stuttu máli að segja, að þau hjónin skildu ekkert orð í því, þegar það var ritað. Þau leituðu og leituðu að mönnum, sem gætu skilið þetta mál. En það gekk erfiðlega. Að lokum tókst þeim samt að finna þýðandann. Og nú var þeim sagt, að þetta mál væri eitt af Balkanskagamálunum, Jugoslavneska held eg, a& það hafi verið nefnt, og að málið á ritinu væri sérstaklega gott. Persónurnar í leikritinu eiga að tákna ýmsar hugmynd- ir, svo sem sannleikann, réttlætið, illgirnina og lygina, og þetta er sorgarleikur. Geðshræringar eru ákaflega miklar. Frúin er við og við látin leika þetta í sambandsástandi. Þeim hjónunum er sagt, að það sé í raun og veru ekki gert vegna jarðneskra manna, heldur sé það eins og nokkurs. konar prédikun, sem flutt sé yfir framliðnum mönum.