V22 7SÍ0R&UNN Dr. Wickland hefír mikla trú á því, að geðveikin verði oft 'lknuð með þessum hætti í heiminum. Bersýnilega er þar vand- hæfni á. Það er auðvelt verk, að koma upp annari eins raf- magnsvél og þeirri, sem hann notar. En það er ekki jafn-auð- gert fyrir geðveikralækna að fá önnur eins verkfæri og frú "Wickland. Til þess er hætt við, að meiri rækt þurfi að leggja við það að koma upp miðlum en enn hefir verið gert. Og auk 'þess sem frú Wiekland er vafalaust afburða-miðill, þá hefir hún þá óbifanlegu trú á köllun sínni og á varðveizlu irá æðri máttarvöldum, sem víst er nokkuð sjaldgæf. I einni af kirkjunum í Los Angeles fara fram lækningar, og það í stórum stíl. Presturinn þar er kona. Hún hóf starf- semi sína þar í borginni fyrir nokkurum árum með öruggri sannfæring um það, að hún hefði köllun til þess frá guði að 'ieiða menn á veg sáluhjálparinnar og líkna sjúkum mönnum. Því miður gat eg ekki komist í kirkju hjá henni. En eg hafði nokkrar spurnir af henni. Guðfræði hennar er, skildist mér, svipuð guðfræði Hjálpræðishersins. Hún boðar afturhvarf og trú með gömlum hætti. Og hún læknar í guðsþjónustunum. Eða réttara sagt, hún bi8ur guð um lækning sjúklingunum til handa. Óhætt er víst að fullyrða, eftir því sem mér var sagt, að þúsundir manna séu sannfærðar um, að hún fái bænheyrslu. Hún hefir og afburða gott lag á því að vekja trúar-hrifning í kirkjunni. Stundum prédikar hún úti undir beru lofti fyrir afarmiklum mannfjölda. Eg geri ráð fyrir, að það sé aðallega lækninganna vegna, hver ógrynni af peningum streyma til 'hennar. Hún byrjaði með tvær hendur tómar, og hun hefir imeðal annars reist volduga kirkju. Hún fær peninga til hvers sem hún vill. En hún vill ekkert annað en það, sem hún telur til eflingar guðs ríki. Okkur var sérstaklega sagt frá lækningum á tveimur sjúk- lingum. Önnur þeirra gerðist í kirkjunni. íslenzk kona var þar viðstödd og sjónarvottur að því, er þar gerðist. Uppi á pall- inn til lcvenprestsins var komið með barn, sem ekkert komst, nema á tveim bkjum. Presturinn bað upphátt fyrir því, að