124 MORGUNN Eg ætla þá að bregða mér með ykkur langa leið í'rá Los- Angeles, allar götur norður eftir Kyrrahafsströndinni að landamærum Canada. Þar er ofurlítill bær, sem heitir Blaine,. rétt sunnan við landamærin. Þar lá fyrir nokkurum árum ung, íslenzk kona fyrir dauðanum. Við kyntumst þessari konu, gistum hjá henni og manni hennar, og nutum takmarkalausrar góðvildar af þeirra háliu. Konan er elskuð og virt af þeim, sem þekkja hana bezt. Hún. er gáfuð og virðist hafa svo heilbrigðar og skynsamlegar skoð- anir á lífinu, sem framast verður á kosið. Heilsuleysi hennar byrjaði með berklum í öðrum fætin- um. Þeim veikindum lauk svo, að fóturinn var tekinn af' henni og hún gengur við tréfót síðan. En þar á et'tir fór að bera á berklum innvortis, bæði í nýrum og maga. Tvisvar var hún skorin upp, en það gagnaði ekkert. Hún var rannsökuð af' ágætum læknum, og þeir sannfærðust loks um, að hún gæti ekki lifað. Manninum hennar var sagt, að ekkert væri unt að gera annað en gefa henni deyfandi meðul til þess að stilla kvalirnar, þangað til umskiftin kæmu. Vinir hennar voru farn- ir að koma til hennar til þess að kveðja hana í síðasta sinn. Þá kom til hennar stallsystir hennar, sem alist hafði upp' í nágrenni við hana og verið henni mjög samrýnd. Þær höfðu átt sammerkt að því, að báðar höfðu verið óvenjulega efa- gjarnar í trúmálum. Aðkomukonan hafði átt við mikið heilsu- leysi að stríða, þótt ekki væri það jafn-alvarlegt sem á þeirri er nú lá þarna fyrir dauðanum. Aðkomukonan sagðist vera. farin að leita lækningar hjá kristnu vísindamönnunum" (Christian Scientists). Sjúku konuna furðaði mjög á þessu,. og hafði orð á því við stallsystur sína, að sér þætti kynlegt að hún leitaði í þá átt. Hún bjóst við að hjá henni væri lítið um trú á yfirnáttúrlega atburði. Stallsystirin sagði, að svona hefði þetta nú samt farið, og að sér væri farið að batna. Þetta varð til þess að hugur sjúku konunnar snerist í þessa átt. Nú var leitað til konu í Seattle, sem heyrir til flokki kristnu vísinda- mannanna. Iíún var beðin að taka sjúku konuna að sér og því lofaði hún. Seattle er 130 mílur frá Blaine. Sjiíklingurinn