142 MORGUNN eru landamæri hans heims, og hann hefir lifað fyrir innan. þau landamæri eins og kónguló í vef sínum og mist alt sam- band við heiminn fyrir utan. Hann hefir engan skilning á því, að það er eitthvað í eðli hlutanna, sem ætti að koma hon- um til þess að segja: Eg þori það ekki," eitthvað, sem ekkL lætur að vilja nokkurs manns, eitthvað, sem enginn maður getur sveigt sér sjálfum til gagns, eitthvað, sem engum samn- ingum verður við komið, né það að vettugi virt; óbreytanlegt og óhjákvæmilegt vald, sem heldur sérhverjum manni að ein- hverju leyti fjötruðum, vald, sem annaðhvort verður til þess; að auka afl mannsins og stækka hann á allar lundir, eða vofir yfir honum eins og aðalhætta lífs hans réttlætislögmálið, siðalögmál alheimsins, sem skapað er og stjórnað af Guði. En þá blasir við okkur hin algjörða mótsetning Heródes- ar og alls þess, sem hann táknar, þar sem fólkið er, sem situr heima hjá einum vini fangans og biðst fyrir. Hvað táknar sá hópur og sú athöfn? Öllum er það ljóst, að Pétur er £ ramgjörðri gæzlu og því fer svo fjarri, að þau geti haft nokk- ur áhrif á það, hvernig fyrir honum fer, að þau gætu ekki einu sinni bjargað honum, þó að þau væru tífalt fleiri og þó að þau væru öll hinir fræknustu hermenn. Það er ekki við' Heródes einan að etja, heldur í raun og veru við sjálft róm- verska valdið, sem að baki honum stendur. Og hér sitja nokk- urir karlar og konur og biðja þess, að Pétur verði frelsaður. Eg sagði áðan, að Heródes minti á, eða væri fulltrúi þeirra^ sem sálmaskáldið nefnir heimskingja, er segi, að Guð sje ekki til. Mundi eigi óviðkomandi manni hafa fundíst kristni hóp- urinn í Jerúsalem Htið óheimskari, er hann trúði því, aö nokk- ur sá máttur væri til, sem kynni að taka upp Péturs málstað og frelsa hann úr hættunni? Táknar þessi hópur þarna ein- ungis þá gömlu só^u, að ,,svo mæla börn sem vilja," að menn telji sér með öðrum orðum einungis trú um það> að einhver máttur geti heyrt bænir þeirra og geti hjálpað, af því að örvæntingin og hræðslan reki þá til slíkrar trúar? Eða er trú: þeirra bygð á einhverjum veruleika? Sama spurningin verð-