MOEGUNN 147 um að réttlætið er einn af meginþáttum alheimsins og síð- ferðið eitt höi'uðeinkenni hans. Vér stöndum andspænis lærisveinahópnum í stofunni við bænahald sitt. Yér stöndum andspænis öllum mönnum á öll- um tímum, sem bera hræðslu og örvænting í hjarta út af ástvinum sínum, þegar þeir virðast vera leiksoppar í hendi blindrar náttúru og blindra manna, Vér stöndum andspænis öllum þeim miljónum manna, sem finst sín eigin sál hvísla að þeim, að einliver máttur, æðri og göfugri, heyri hróp þeirra og skilji meðaumkun þeirra og samuð með þeim, sem þeir elska. Vér stöndum með öðrum orðum andspænis sjálfri trúartil- finningu mannanna og spyrjum: Er þetta alt misskilningur t Er trúin ekkert annað en uppfundning mannsins sjálfs til þess að svíkja sjálfan sig og telja sjer trú um það, sem ekki er, til þess að hann hnígi ekki undir byrðunnm? Nei, segir sagan, trúartilfinningin er það sannasta, sem til er í manninum, því að hún segir honum það, sem áreiðanlegast er alls, að maðurinn er aldrei einn. Þótt eg fari upp í himininn, þá ertu þar; þótt eg gerði undirheima að hvílu minni, þá ertu þar," segir sálmaskáldið. Og Pétur sjálfur. Bru þetta ekki einkennileg forlög? Br ekki eðlilegt að hugsa sér, að hann hafi hrópað til Guðs áður en hann sofnaði í dýflissunni, og spurt: Á þetta að verða endirinn? Eg, sem á alt mitt yerk óunnið fram undan mér, á það að geta komið fyrir, að eg verði leiksoppur í höndunum á níðing og augnagaman skrílsins? Og það er rétt, hann átti alt sitt verk óunnið. Og vissan um annað líf og trúin á til- veru Guðs verður, að minsta kosti hjá mörgum, nátengd þeirri hugsun, að meðan verk hans sé óunnið, þá verði fyrir því séð, að hann fái tækifæri til þess að vinna það. Og stundum verður verkið ekki fnllgert, nema menn fái að deyja fyrir það. Pétur var ekki látinn deyja fyrir það nú, en hann fékk það síðar. Að minsta kosti segja gamlar kristnar erfisagnir fré því, að hann hafi verið líflátinn með krossfestingu í Neros- ofsóknunum miklu. Erfisögnin kann að vera skáldskapur, en það er þá skáldskapur, sem bygður hefir verið á reynslu likri 10*