MORGTJNN 151 með vita, að frú Clegg óskar ekki eftir frekari skrifum frá yður um þetta og lítur svo á, að nú sé bréfaskiftunum lokið." Nú virtist mér eg ekki geta gert neitt meira í þessu máli. Lét eg því bréf þetta hjá öðrum bréfum. Svo fór um sjóferð þá", hugsaði eg. Mér leizt sem alt væri búið. En svo var þó ekki. I næstu viku var eg á sambandsfundi í Prumstead, þar sem fengist var við lækningar. Miðillinn var frú May Bird. Framliðinn læknir talaði af vörum hennar; og áður en hann byrjaði á lækningatilravmum sínum, gat hann þess, að margir hermenn væru viðstaddir og meðal þeirra einn, er segðist heita William Clegg. Hann bætti við: Hann segir, að þú hafir fengið bréf frá mömmu sinni; en honum er um- nugað um, að þú fáir að vita, að mamma hans hefir ekki skrif- að það. Hann segist vera kominn til þess að tjá þér þakklæti sitt fyrir það, sem þú hefir gert og til þess að biðja þig af- sökunar á því, hvernig sumir á jörðinni hafi brugðist við skila- boðum hans. Honum er umhugað um, að þú fáir að vita, að það var ekki mamma hans, sem neitaði að sinna skilaboðunum. 3?að var presturinn á staðnum, sem þekt hafði hann frá barn- mku. Pilturinn er mjög mæddur og harmþrunginn." Eg fann, að það var ófært, að láta hér við sitja. Eg hætti við ásetning minn aS skrifa ekki framar. Eg sendi móður piltsins fulla greinargerð og bætti því við, vegna bréfsins frá prestinum, að eg mundi ekki ónáða hana með frekari skila- boðum frá drengnum hennar, nema hún skrifaði mér og ósk- aði, að eg gerði það. Svar hefi eg ekkert fengið. Eg kenni í brjósti um piltinn. Eg kenni þó meira í brjósti um móðurina. En eg kenni langmest í brjósti um prestinn. Eg vildi ekki eiga að vera í sporum hans, þegar hann hittir pilt- inn þann hinumegin, Eg er hræddur um, að honum muni ckki fyrsta kastið finnast himnaríki" alveg eins björt vistarvera fyrir sig og hann ef til vill ímyndar sér, að það muni verða. Nei, eg öfunda hann ekki af þeim fundi. En eg vildi gjarn- an vera viðstaddur. Vera má að eg gæti fært dálítið fram hon- um til málsbóta. Með því að eg hefi gengið í gegnum það bug- arástand sjálfur, sem hann er nú í, gæti eg bent á, hve miklum