MORGUNN 173 "Venjulegar myndir (teknar af mönnunum í lifanda lífi) voru sýndar við hliðina á þessum svo nefndu andamyndum, og ¦enginn efi virtist geta á því leikið, að myndirnar væru af sömu mönnunum. Bin af þessum myndum var af hermanni, sem fallið hafði í ófriðinum. Hún náðist áður en fregnir höfðu borist til Eng- lands um atvikin að láti hans. Á myndinni var sjáanlegt á ¦öðru gagnauga sárið eftir kúluna, sem hafði orðið manninum að bana. Þá sneri presturinn sér að því máli, hvort framliðnir anenn gætu komið skeytum til vor, og hvort vér gætum komið skeytum til þeirra. Hann hikaði ekki við að fullyrða, að svo væri. Þetta sagði hann, að væri hið raunverulega samfélag heilagra", sem vér játuðum í trúarjátningunni, en kirkjunni væri nú á tímum gersamlega ókunnugt um það. Sálir framliðinna manna sagði hann, að gætu með ýmsum hætti komið skeytum til vor; þai á meðal með því að tala í líkömuðu gerfi; sömuleiðis með röddum, þegar framliðnu mennirnir væru sjálfir ósýnilegir; ennfremur með röddum, sem dulheyrnin ein gæti náð í; svo og með því að tala af vör- um miðils, þegar hann væri í dái; sömuleiðis með ósjálfráðri skrift; og loks með táknum og skrifum, sem fengjust með sál- rænni ljósmyndan. Hann kvaðst hafa reynslu af öllum þessum aðferðum, og lýsti því, hvernig hann hefði talað augliti til auglitis við menn, sem liefðu dáið í sókn hans, komið aftur ag sagt honum hluti, sem honum hefði vorið ókunnugt um áður og sannast síðar. Líka sagði hann frá því, hvernig framliðinn faðir hans liefði talað við hann augliti til auglitis, og leiðrétt hjá honum sérstök atriði í sögu ættar hans, sem hann hafði haft rangar hugmyndir um alla sína æfi; staðhæfingar föður hans hefðu eftir á reynst réttar. Hann mintist líka á það, er koniið hafði fyrir Mr. J. Brown í Melbourne. Dótlir hans giftist Mr. Alfred Deakin, forsætisráðherra Ástralíu. Tveir synir Browns, Frank og ITugh lögðu af stað í lystisldpi sínu einn dag síðdegis og sáust aldrei ¦eftir það. Mr. Brown gat enga vitneskju fengið um þá með