214 MORGUNN Ritstjóra-rabb Morguns um hitt og þetta. Nýlega er út komin á Englandi »Saga Spíri- Saga tismans« (History of Spiritualism) eftir Sir sp n i m ns. ^hur Conan Doyle, mikil bók í tveim bindum. Enn hefir hún ekki hingað komið, svo að mér sé kunnugt, en af þeim ummælum enskra blaða, sem ég hefi séð, má ráða það að bókin sé mjög merkileg, enda var ekki við öðru að búast. Læknablaðið »Lancet«, sem víst er talið með hinum allra-fremstu þess konar tímarita í Norðurálfunni, er eitt þeirra blaða, er eg hefi séð minnast á þessa bók, og ger- ir það vingjarnlega. Það lætur þess getið, að ýmsar hlið- ar á efni bökarinnar komi ekki læknisfræðinni við, en segir gvo: »Vér verðum hér að líta á þessa bók, sem ritaða af læknisfróðum manni og senda læknatímariti til umsagnar. Rétt er að mæla með því að lesendur vorir komist sjálfir að raun um það af bók Arthurs Conan Doyle, hvað dygg- ur starfsmaður innan spíritismans, sem notið hefir þeirra hlunninda að fá vísindalega mentun, getur sagt til með- mæla þessari hreyfingu. Þó að mikilvægi hennar sé ekki jafn-ógurlegt eins og vikið er að í formálanum, þá kemur hún miklu róti á ímyndunarafl manna og hefir ef til vill áhrif á líf mikils flokks meðal þjóðarinnar. Bókin er með góðum myndum, einkum myndum af ágætum stuðnings- mönnum hinnar spíritistisku kenningar og starfsemi«. í köflum þeim, sem saman hafa verið tekn- Prestar og jr 0g pýddjr af »Tveim kunningjum« og S Irntu " Prentaðir eru her ' heftinu, eru fólgnar al- varlegar áminningar til prestanna. Upp- haflega eru þær auðvitað stílaðar til brezkra presta. Þó að fleiri prestar í Stórabretlandi en nokkuru öðru landi hafi