MORGUNN 239 82. Scribe maður, sem skrifar jafnóðum það, er gerist á sambands- fundi, ritari. 83. Seance fundur, þar sem reynt er að fá dulræn fyrirbrigði,. einkanlega skeyti frá framliðnum mönnum, tilraunafundur, sambandsfundur. 84. Spirit framliðin sál, andi. 85. Spiritism sú sannfæring, að andasamband sé staðreynd eða réttmæt kenning, án þess að tilheyra nokkurum trúarflokki, andahyggja. 86. Spiritualism trúarkerfi, sem sannfæringin um samband við framliðna menn er þungamiðjan í, andatrú. 87. Spontaneous runninn frá innri, vitandi eða óafvitandi, hneigð, sjálfkrafa, sjálfkvmur. 88. Stigmatization það að framleiða blöðrur eða ðnnur likamleg merki með sjálfsefjunum eða öðrum hugrænum aðferðum, sára- merki, undamerki; athöfnin sjálf sáramarkan, undamarkan (stigmatized = undamarkaöur). 89. Subliminal undir þröskuldi vitundarinnar, sefa-. 90. Suggestion 1. Það að blása einhverjum í brjóst eða smeygja inn í huga hans einhverri trú eða hvöt, einkanlega i dásvefni, með orðum, sérstöku látbragði o. s. frv., sefjan. 2. Hugmynd, sem þannig er komið inn, sefjan. (Sögn suggest = sefja). Auto-suggestion = sjálf-sefjan. 91. Supernormal yfir eða út yfir mátt eða ástand hins venjulega, yfirvenjulegur. 92. Supraliminal yfir þröskuldi vitundarinnar, á sviði vökuvit- undarinnar, vitundar-. 93. Survival framhaldandi líf sálarinnar eða vitundarinnar eftir dauða líkamans, framhaldsllf. (Sögn survive = lifa eftir dauðann). 94. Telakousis sá hæhleiki eða athöfn, að verða var, eins og með heyrn, við hljóð í þessum heimi, út yfir takmörk venjulegrar heyrnar, fjarheyrn. 95. Telekinesis hreyfing hluta, án þess að þeir sé snertir og an þess að henni valdi nokkurir þektir kraftar, svo sem segulafl, þyngd o. s. frv., firðhrring. (Lýsingarorð telekinetic = firð- hræringar-). 96. Telepathy skeytasending milli huga aðra leið en viðurkendar leiðir skilningarvitanna, fjarhrif (lýsingarorð telepathic = fjar- hrifa-); sérstaklega notað um skeyti milli lifandi manna (sjá metapathy). 97. Telaesthesia skynjun hluta eða ástands, óháð þektum leiðum skilningarvitanna og óháð nokkurum öðrum þektum hug, fjar-