Morgunn - 01.06.1934, Blaðsíða 106
100
M O R G U N N
Spyr eg hann eftir fljótinu, telur hann það muni vera
ófært og Snorri muni eigi hafa lagt á það, heldur farið
fram á bæi. Líður enn nokkur tími, þar til síðari hluta
dags; sé eg þá, að maður kemur sunnan ,,fellið“. Hýrn-
aði þá á mér brúnin, því eg hélt að Snorri kæmi; var það
og. Hafði Snorri gengið fram á brú, því að fljótið var
orðið ófært annars staðar.
Þóttist eg nú sjá, að maður sá, er eg sá koma alla
leið utan frá Yztafelli, og sem eg horfði margsinnis af
og gekk rakleiðis sömu slóð og Kristján alla leið heim
á Fellsselsbæ, væri enginn annar en Jóhann sá, er úti
varð undir klettinum í Mýraselshrauni.
Alfred Vout Peters látinn.
Alfred Vout Peters, miðillinn nafnfrægi, andaðist
laugardaginn 31. marz síðastl. Hann fékk heilablóðfall
og var meðvitundarlaus eftir það einn sólarhring.
Fjórum vikum áður var hann á skygnilýsingafundi
í samkomusalnum mikla Queens Hall í London. Mrs.
Estelle Roberts, sem er ein af ágætustu miðlum á Eng-
landi, var að lýsa því, er hún sá hjá mönnum. Hún sagði
Peters, að hún sæi hjá honum mikilfenglegan anda, sem
hefði komið þangað hans vegna. Hann segði, að starf
Peters ætti nú að breytast, og hann mundi taka til starfa
á æðra sviði. Svo bætti hún því við, að hún þyrfti að
segja honum nokkuð meira og bað hann að tala við sig
að fundinum loknum.
Eftir fundinn sagði hún honum, að þessi vera hefði
komið til þess að búa hann undir andlát sitt.
Peters spurði hana, hvort hún væri ekki í neinum
vafa um þetta. Hún sagðist vita þetta með fullri vissu.
Peters sagði henni þá, að stjórnandi sinn hefði sagt sér