Morgunn - 01.06.1940, Blaðsíða 7
Morgunn 20 ára.
MeS það útsýni eilífðarinnar fyrir augum, sem MOTtG-
UNN hefir verið að reyna að flytja þjóðinni, eru tveir
óratugir örstuttur áfangi; en þó þykir oss hlýða að nema
staðar um stund á sjónarhóli tuttugu ára áfangans og
horfa þaðan bæði aftur og fram.
Hvað hefir unnizt á liðnum 20 árum?
Þeirri sþurningu er vitanlega ekki auðsvarað; fyrst og
fremst vegna þess, að vér eigum ekki nægilegan aðgang
að þeim ávöxtum, sem andlegt sáðmannsstarf ber í sál-
um mannanna. Yér vitum hverju sáð er, en vöxturinn er
oftast mannlegum augum hulinn. Hefir þekkingin fært
út kvíarnar, vitsmunirnir fengið meira svigrúm og and-
leg víðsýni vaxið með þjóðinni? Hefir hleypidómunum
verið fækkað, heimskunni skorinn þrengri stakkur og
þröngsýnin hörfað fyrir árroða frjálsari andlegrar hugs-
unar almennings?
Að þessu hefir MORGUNN viljað vinna í 20 ár, og vér
fáum ekki varizt þeirri hugsun, að hann hafi haft nokk-
ur áhrif á andlegt líf þjóðarinnar.
í full 18 fyrstu árin átti hann því láni að fagna, að
ritstjórnin var í höndum eins ritsnjallasta vitmanns þjóð-
arinnar, Einars H. Kvarans, rithöfundar, en það eitt var
nægileg trygging þess, að þjóðin hlustaði á þann boð-
skap, sem ritið flutti. Þær miklu vinsældir, sem sálar.
rannsóknamálið nýtur í öllum byggðum landsins, ber
ekki sízt að þakka MORGNI, eins og hann var í ritstjórn-
1