Morgunn


Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 56

Morgunn - 01.12.1953, Blaðsíða 56
Af hverju fór ég að gráta? ★ Við vorum að flytja búferlum í annað húsnæði í London. Hús þetta var „terrace“-byggt, en þar hafði áður staðið stórt hús. Hús þetta var fjórar hæðir auk kjallara. Á hverri hæð voru tvö til þrjú herbergi. Við vildum ekki fara þangað með börnin fyrr en flutningunum væri lokið og búið væri að koma öllu í lag. Maðurinn minn, börnin og annað heimilisfólk kom því ekki þangað fyrr en síðar. Ég flutti þangað fyrst og svaf fyrstu nóttina ein í hús- inu, að því undanteknu, að tvær daglaunakonur höfðu þar herbergi til bráðabirgða. Ég sannfærðist þegar um, að reimt væri í húsi þessu. Ég svaf í litlu herbergi, sem var áfast við baðherbergi. öðru hverju varð ég vör við einkennilegan hávaða og annarleg hljóð, en reyndi að telja mér trú um að allt slíkt stafaði frá lofti í vatnsleiðslunni, sem hægt myndi að koma í veg fyrir. En þó að ég reyndi að telja mér trú um þetta, þá duld- ist mér ekki, að slíkt gat ekki talizt orsök að þunglyndi því og ömurleikakennd þeirri, er settist að huga mínum, og lagðist á mig eins og heljarþungt farg. Þetta hálflam- aði mig, og þegar maðurinn minn var kominn, sagði ég einu sinni við hann: „Ég vona að ekkert óþægilegt sé í vændum fyrir okkur hérna í húsinu.“ „Dálagleg byrjun eða hitt þó heldur,“ svaraði hann ólundarlega. Ég minntist ekki framar á þetta, en reyndi af öllum mætti til að berjast á móti þessari ömurleikakennd, sem að mér sótti, og mér tókst það að nokkuru leyti, eftir að fólkið mitt var komið.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.