ÍNGA L. LÁRUSDÓTTIR, útgefandi og ritstjóri 19. j,ií" 1917-1 929. lítið sé, að frSa og glSa. Vér væntum þess einnig, að nafn blaðsins kunni að vekja oss þann metnað að láta eigi falla í gleymsku og dá minn- inguna um það, að árið 1915 áttum vér svo vitra og víðsýna forráðamenn, að íslenzkar konur voru eftir 19. júní það ár lagalega rétthæstar allra kvenna í víðri veröld". Ihugun slíkra at- burða hlýtur að lækka hita æsinganna", þýða þurrafrost afskiptaleysisins" og draga úr næð- ingum misskilningsins". Mætti oss, íslenzkum kon- um auðnast að leggja að velli meðal vor þau hin þrjú meinvætti: æsingarnar, afskiptaleysið og mis- 4 skilninginn. Þá mun oss takast að sýna með starfi voru í þjóðfélaginu, að það var vel ráðið að veita oss svo fljótt og baráttulílið fullt stjórn- málalegt jafnrétti. Og þótt því væri aldrei um Álftanes spáð, að ættjörðin frelsaðist þar", þá má svo fara, að vor hlutur í viðreisn lands og þjóðar á þeim valegu tímum, er nú ríkja í beiminum, kunni að verða ósmár. En til þess þurfum vér að ganga að störfum án þess að hika og leita jafnan hins rétta og fylgja því, hvað sem hver segir. Svafa Þórleifsdóttir. 19. JtJNÍ