Tķmarit.is   | Tķmarit.is |
Leita | Titlar | Greinar | Fréttir | Um vefinn | Algengar spurningar |
skrį inn | Íslenska | Føroyskt | Kalaallisut | Dansk | English |

19. jśnķ

PDF  | HQ_PDF  | TXT  |
Skoša ķ nżjum glugga:
PDF  | HQ_PDF  | TXT  |


Ašlaga hęš


žś žarft aš vera meš Adobe Reader Plugin til aš skoša žessa sķšu


get Adobe Reader



19. jśnķ

						ekki aðeins fyrir forréttindum kvenna, heldur al-

mennum mannréttindum.

Þessi 22 ára gömlu lög hafa verið og eru enn

svo þverbrotin, að furðu gegnir, að því skuli ekki

hafa verið mótmælt. En tilfellið er, að frá fyrstu

framkvæmd laganuna hafa frá öndverðu skrifstofu-

störf verið flokkuð eftir því, hvort þau væru

kvenna- eða karlastörf, og þá auðvitað kvennastörf

lent í lægra flokki, þó að þeirra vinna eins og t. d.

vélritun, séu langtum erfiðari. Og ekki nóg með

það. Ég vil nefna dæmi.

Hjá stórri ríkisstofnun hér i Reykjavik er ráðin

stúlka með 3—4 ára háskólanám bæði utanlands

og innan, sem bréfritari o. fl. Samkvæmt launa-

lögum lendir hún í 9. launaflokki. Það er allt gott

og blessað. Nú, þegar hún hefur starfað þarna í

10 ár, hafa störfin aukizt svo, að hún þarf að fá

aðstoð. Þá er ráðinn karlmaður henni til aðstoðar,

með sömu menntun, þ. e. 4 ára háskólanám, en

hann er umsvifalaust settur í 14. launaflokk.

Önnur stúlka í sömu stofnun með verzlunar-

skólamenntun er ráðin til að reikna út laun o. fl.

Hún lendir í 7. launaflokki. Þegar þessi störf vaxa

svo mikið, að ekki er hægt að ætlast til að einn

maður geti leyst þau af hendi, er ráðinn maður

henni til aðstoðar. Þessi maður, karlmaður auðvit-

að, kunni ekkert til þessara verka, stúlkan, sem

kunni verkið, varð því að leiðbeina honum og hafa

vakandi auga á, að hann gerði ekki einhverja vit-

leysu, sem hefði valdið stofnuninni vandræðum.

Þessi aðstoðarmaður, sem í fyrstu ekkert kunni, var

orðalaust settur í 14. launaflokk, þ. e. 7 launaflokk-

um ofar en stúlkan, sem í raun og veru bar ábyrgð

á verkinu.

Hvers vegna láta stúlkur bjóða sér þetta, því að

ótal dæmi mætti nefna þessu lik?

Þegar mér voru sagðar þessar sögur, sem ég hef

nú greint frá, rifjaðist upp fyrir mér meira en 20

ára gömul saga af duglegri og vel færri skrifstofu-

stúlku á stórri ríkisstofnun hér í Reykjavík. Laun

hennar hafa sennilega verið lág, þau voru það þá

yfirleitt, það var ekkert um það að fást, en þó

rann henni í skap, daginn sem hún frétti, að óvan-

ur piltur hefði verið ráðinn á skrifstofuna með

miklu hærri launum en hún hafði eftir margra ára

starf. Hún mun hafa hugsað sem svo, að þetta

skyldu þeir ekki leika lengi. Hún stóð ekkert líkt

því eins vel að vígi eins og þessar stúlkur, sem

sagt er frá hér að framan, því hún þurfti að byrja

á þvi að taka gagnfræðapróf. Það gerði hún árið

1945, stúdentspróf 1946 og lögfræðipróf við háskól-

ann 1949 með hárri einkunn. Var það ekki Björn-

stjerne Björnson eða kannski Ibsen, ég þori ekki

að fullyrða neitt um það eftir minni, sem sagði:

„Vilji er allt sem þarf." En ég er sannfærð um,

að ef íslenzkar konur hefðu einlægan vilja á að eiga

meiri þátt i stjórnmálum en þær gera nú, gætu

þær gert það. En það er víðar en í stjórnmálum,

sem konum er vikið til hliðar eða látið eins og þær

væru alls ekki til. 1 samtalinu við hann kunningja

mmn, sem ég drap á í upphafi þessa máls, spurði

ég hann annarrar samvizkuspurningar: „Ef þú

ættir að taka á móti háttsettum gestum þínum,

kannski erlendum, mundir þú þá bjóða honum til

veizlu heima hjá þér, án þess að ræða það við konu

þína?" „Auðvitað ekki," sagði hann. „Jæja, hvað

finnst þér þá um, að nýlega hefur verið skipuð

nefnd til þess að annast hátíðahöld, sennilega á

Þingvöllum, til að minnast ellefu hundruð ára af-

mælis Islands byggðar, án þess að nokkur kona

hafi þar verið tilkvödd?" Honum varð svarafátt.

Væri það yfirleitt hugsanlegt, að nokkur byggð

væri hér á landi í dag, ef umhyggja og forsjá kon-

unnar hefði ekki verið að verki? Það hefur alltaf

verið hennar hlutverk og verður vonandi áfram

að varðveita lífið. í áframhaldi af þessu mætti

kannski geta þess, að í 17. júní hátíðahöldunum

hér í bæ hefur, að þvi er ég bezt veit, aldrei nokk-

ur kona verið kvödd til ráða, þó að nokkrar kon-

ur eigi sæti í borgarstjórn.

Þannig mætti telja endalaust verkefni fyrir K.R.

F.I. Þar eru haldnir fundir einu sinni í mánuði,

8 mánuði ársins, um kennslu- og uppeldismál,

trygginga- og skattamál og margt fleira fróðlegt.

En alltof fáar félagskonur hafa áhuga á að sækja

þessa fundi. I því sambandi verður mér oft hugs-

að til rika mannsins í dæmisögunni, sem bauð vin-

um sinum til fagurrar veizlu, en hver af öðrum

afsakaði sig og gat ekki komið. Þá sendi ríki mað-

urinn þjóna sína út á stræti og gatnamót og skip-

aði þeim að „þrýsta þeim til að koma", svo að

veizlan yrði haldin. K.R.F.l. hefur ekki ráð á slik-

um þjónum, við verðum að láta okkur nægja að

auglýsa fundina oft með litlum árangri.

Þar sem ég býst við, að þetta blað „19. júní"

verði það síðasta, sem ég hef afskipti af, langar

mig að nota þetta tækifæri til að þakka sérlega

góða samvinnu öllum þeim konum, sem sæti hafa

átt í útgáfustjórn blaðsins þau 17 ár, sem ég hef

átt hlut að útgáfunni. „19. júní" hefur alltaf birt

19. JtJNl

					
Fela smįmyndir
Kįpa I
Kįpa I
Kįpa II
Kįpa II
Blašsķša 1
Blašsķša 1
Blašsķša 2
Blašsķša 2
Blašsķša 3
Blašsķša 3
Blašsķša 4
Blašsķša 4
Blašsķša 5
Blašsķša 5
Blašsķša 6
Blašsķša 6
Blašsķša 7
Blašsķša 7
Blašsķša 8
Blašsķša 8
Blašsķša 9
Blašsķša 9
Blašsķša 10
Blašsķša 10
Blašsķša 11
Blašsķša 11
Blašsķša 12
Blašsķša 12
Blašsķša 13
Blašsķša 13
Blašsķša 14
Blašsķša 14
Blašsķša 15
Blašsķša 15
Blašsķša 16
Blašsķša 16
Blašsķša 17
Blašsķša 17
Blašsķša 18
Blašsķša 18
Blašsķša 19
Blašsķša 19
Blašsķša 20
Blašsķša 20
Blašsķša 21
Blašsķša 21
Blašsķša 22
Blašsķša 22
Blašsķša 23
Blašsķša 23
Blašsķša 24
Blašsķša 24
Blašsķša 25
Blašsķša 25
Blašsķša 26
Blašsķša 26
Blašsķša 27
Blašsķša 27
Blašsķša 28
Blašsķša 28
Blašsķša 29
Blašsķša 29
Blašsķša 30
Blašsķša 30
Blašsķša 31
Blašsķša 31
Blašsķša 32
Blašsķša 32
Blašsķša 33
Blašsķša 33
Blašsķša 34
Blašsķša 34
Blašsķša 35
Blašsķša 35
Blašsķša 36
Blašsķša 36
Blašsķša 37
Blašsķša 37
Blašsķša 38
Blašsķša 38
Blašsķša 39
Blašsķša 39
Blašsķša 40
Blašsķša 40
Blašsķša 41
Blašsķša 41
Blašsķša 42
Blašsķša 42
Blašsķša 43
Blašsķša 43
Blašsķša 44
Blašsķša 44
Blašsķša 45
Blašsķša 45
Blašsķša 46
Blašsķša 46
Blašsķša 47
Blašsķša 47
Blašsķša 48
Blašsķša 48
Blašsķša 49
Blašsķša 49
Blašsķša 50
Blašsķša 50
Blašsķša 51
Blašsķša 51
Blašsķša 52
Blašsķša 52
Blašsķša 53
Blašsķša 53
Blašsķša 54
Blašsķša 54
Blašsķša 55
Blašsķša 55
Blašsķša 56
Blašsķša 56
Blašsķša 57
Blašsķša 57
Blašsķša 58
Blašsķša 58
Blašsķša 59
Blašsķša 59
Blašsķša 60
Blašsķša 60
Blašsķša 61
Blašsķša 61
Blašsķša 62
Blašsķša 62
Blašsķša 63
Blašsķša 63
Blašsķša 64
Blašsķša 64
Kįpa III
Kįpa III
Kįpa IV
Kįpa IV