KENNSLUMALUM Sigríði önnu Valdimarsdóttur var falið að sjá um þáttinn og Pálína Jónsdóttir B.A. fengin til að taka viðtölin. BRUÐULEIKHUS Áslaug Friðriksdóttir, kennari við barnadeild HlíSaskóla. Hvar og hvernig hefur þú kynnzt brúðuleik- húsi og notkun þess við kennslu?" Um langan aldur hafa brúðuleikhús verið starf- rækt í Austurlöndum. Þaðan breiddust þau út til meginlands Evrópu. 1 slavneskum löndum munu þau hafa átt miklu fylgi að fagna, en á Norður- löndum munu þau ekki hafa náð því að flokkast undir þjóðlega list. Einhvern tíma hef ég heyrt það, að sagnaþulir hinna norðlægu landa hafi aðeins þurft að hafa góða frásagnargáfu til þess að halda áheyrendum sínum föngnum, meðan vetrarstormar geisuðu úti fyrir, en þulir sólarlandanna hafi hins vegar orðið að grípa til ýmissa bragða til þess að halda at- hygli áheyrenda sinna vakandi, og þess vegna hafi brúðuleikhúsið orðið til. Eitt er víst, að brúðuleikhúsið vinnur á bæði sem list og ekki síður sem kennslutæki. Min fyrstu kynni af brúðuleikhúsi voru í kvik- myndahúsi fyrir mörgum árum, síðar sá ég brúðu- leikhús Jóns E. Guðmundssonar, og undanfarin ár hefur Margrét Björnsson komið með brúðuleikhús sitt á jólaskemmtanir í Hlíðaskóla og sýnt börn- um þar inn í heim ævintýranna. Nú þegar er þetta brúðuleikhús þekkt í sjónvarpinu. Sem kennslutæki kynntist ég brúðuleikhúsi hjá sænskri kennslukonu fyrir um það bil tíu árum og varð mjög hrifin. En það eru ekki nema sex eða sjö ár, síðan ég hóf að nota brúður við mína eigin kennslu." 19. JÚNl Hvernig býrðu til brúðurnar?" Brúður má búa til á margan hátt og úr ótrú- legustu hlutum svo sem sokkum, eggjabökkum, plastflöskum, mjólkurhyrnum, úrblásnum eggjum og ávöxtum. Sum börn eiga brúður sjálf. Ég fékk Margréti Björnsson til þess að útbúa nokkrar brúður, og eru þær eign skólans. Komið hefur fram nýtt mótunarefni, plastika, og hefur Margrét, sem er teiknikennari skólans, reynzt mörgum áhugasömum nemum hjálpleg við að móta hausa. Handavirmukennari drengja smíðaði einfalt brúðuleikhús fyrir skólann." Hvert sækir þú efni í sýningarnar? Semja börn- in sjálf jafnóðum söguþráðinn, eða er hann ákveð- inn fyrirfram af þér eða börnunum?" Ævintýrin vilja verða vinsælust til fanga, og verður H. C. Andersen gjarnan fyrir valinu og ýmsar stuttar sögur, sem gott er að segja frá eða búa til leikrit úr. Annars hef ég oft verið undr- andi á þvi, hve fljót böm geta verið að semja. Sam- töl milli tveggja eru mjög vinsæl. Varla liður sá dagur, að ekki sé beðið um brúð- urnar. Það þarf að syngja, segja skrýtlur eða geta gátur. Umferðarkennsla hefur verið ofarlega á baugi í vetur, og hefur Lási lögga", sem er brúða, ver- ið mér ómetanleg stoð. Yfirleitt sé ég um að skipu- leggja umferðarþættina. Ég á það til að bregða mér í gervi sögukonunn- ar, og eftir svipbrigðum að dæma er ekki eins og verið sé að tala við stokka og steina." Framh. á bls. 16.